Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands

Laust er til umsóknar fullt starf sérfræðings í rannsóknaþjónustu á Vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands.

Sérfræðingurinn mun taka þátt í uppbyggingu öflugrar og samræmdrar rannsóknaþjónustu við Háskóla Íslands. Fyrstu tvö árin mun viðkomandi gegna starfi rannsóknastjóra Félagsvísindasviðs og leiða þróun rannsóknaþjónustu sviðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða og þróa rannsóknaþjónustu Félagsvísindasviðs með áherslu á gæði, skilvirkni og góða þjónustu við fræðafólk

  • Veita ráðgjöf og stuðning við mótun rannsóknaverkefna, gerð styrkumsókna og rekstur rannsóknaverkefna

  • Miðla upplýsingum um innlenda og erlenda styrkjamöguleika og halda utan um lykilupplýsingar um rannsóknir og rannsóknastyrki

  • Þróa og innleiða verkferla, regluverk og samninga sem stuðla að faglegri og skilvirkri umsýslu rannsókna

  • Taka þátt í stefnumótun á sviði rannsókna og rannsóknainnviði

  • Byggja upp og viðhalda samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila

  • Efla sýnileika rannsókna og taka þátt í miðlun vísinda, skipulagningu viðburða og samstarfi við vísindanefndir og aðra stýrihópa

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf sem nýtist í starfi, doktorspróf er kostur

  • Reynsla af þátttöku í rannsóknaverkefnum

  • Þekking á innlendu og alþjóðlegu styrkjakerfi rannsókna og nýsköpunar

  • Reynsla af gerð styrkumsókna og utanumhaldi alþjóðlegra verkefna er kostur

  • Þekking á fjármálum og umsýslu rannsóknastyrkja er kostur

  • Reynsla af rannsóknastarfi innan háskóla og þekking á starfi rannsóknastofnana er kostur

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli

  • Góð færni í upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði

  • Fagmennska, frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Rík þjónustulund, sveigjanleiki og góð samskipta- og samstarfshæfni

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Svandís Helga Halldórsdóttir

Tölvupóstur: svandish@hi.is

Sími: 867-8346

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

31.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026