Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lands­bóka­safn Íslands - Háskóla­bóka­safn

Upplýsingar um starf

Starf

Vaktmaður óskast til starfa

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

16.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026

Vaktmaður óskast til starfa

Landsbókasafn Íslands - Háskólabóksafn auglýsir eftir vaktmanni til starfa í hússtjórn safnsins. Hússtjórn sér um viðhald og rekstur Þjóðarbókhlöðunnar, vaktakerfi og búnað hússins, annast samskipti við þjónustuverktaka og sinnir öðrum verkefnum tengdum þjónustu við starfsmenn og gesti hússins. Vaktmenn bera ábyrgð á símsvörun og öryggisgæslu húss, starfsmanna og gesta.

Við leitum að jákvæðum, liprum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa með ástríðu fyrir öryggi og velferð annarra og getur tekið ákvarðanir skjótt og vel.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fylgjast með hússtjórnarkerfum hvað varðar brunaboð, ljós, hita og raka.

  • Fylgjast með eftirlitsskjám og umferð í húsi.

  • Koma að ýmsum viðfangsefnum hússtjórnar, s.s. sorphirðu, öryggisgæslu, þrifum, garðyrkju, símsvörun, flokkun pósts og móttöku vara.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund, stundvísi og samviskusemi.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Góð íslensku og enskukunnátta.

  • Góð tölvukunnátta.

  • Gild ökuréttindi.

  • Hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Um er að ræða 100% starf. Unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum. Safnið er opið fram á kvöld og um helgar yfir vetrarmánuðina. Sumaropnun er virka daga frá 9-17.

Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 29. júní. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun safnsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Safnið er í forystu um öflun, varðveislu og miðlun upplýsinga og eflir þannig menningu, rannsóknir og nýsköpun.

Sameyki Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. is is

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jón Ingimar Jónsson

Hússtjóri

Tölvupóstur: jon.i.jonsson@landsbokasafn.is

Sími: 525 5600

Þjónustuaðili

Lands­bóka­safn Íslands - Háskóla­bóka­safn

Upplýsingar um starf

Starf

Vaktmaður óskast til starfa

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

16.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026