Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðssérfræðingur á svið mannauðs og menningar
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.07.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026
Mannauðssérfræðingur á svið mannauðs og menningar
Umhverfis- og orkustofnun leitar að metnaðarfullum og öflugum einstaklingi í starf sérfræðings á svið mannauðs og menningar. Verkefni sérfræðingsins verða fjölbreytt og krefjandi en meðal annars er sameining heilbrigðiseftirlita sveitarfélaganna við stofnunina fram undan. Umhverfis- og orkustofnun varð til við sameiningu tveggja stofnana fyrir einu og hálfu ári og er því menningarbragurinn okkar ungur en byggir á öflugum grunni. Við leitum að sérfræðingi með reynslu sem hefur brennandi áhuga á umbótum og breytingastjórnun en viðkomandi mun taka virkan þátt í þeim breytingum sem fylgja sameiningunni og umbótaverkefnum stofnunarinnar. Jafnframt mun viðkomandi sinna greiningum og gagnavinnu og framsetningu og túlkun gagna. Einnig verður þjálfun og fræðsla stórt viðfangsefni sviðsins samhliða ferlavinnu og gæðastarfi stofnunarinnar.
Markmið sviðs mannauðs og menningar er að skapa starfsumhverfi þar sem öflugur mannauður, heilbrigð vinnustaðamenning og markviss gæða- og umbótastarfsemi styðja við árangur, starfsgleði og stöðuga þróun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mönnun og móttaka nýs starfsfólks
Fræðslumál og starfsþróun
Starfsaðstöðumál
Aðstoð við launa- og kjaramál
Greining mannauðsgagna og utan umhald þeirra
Viðverukerfi og verkbókhald
Umbætur og breytingastjórnun
Mannauðsferlar og stafrænar lausnir
Þjónusta og ráðgjöf við starfsfólk og stjórnendur
Hæfniskröfur
Menntun á sviði mannauðsmála eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af að starfa við mannauðsmál
Reynsla af að starfa í teymi er kostur
Stafræn hæfni og greiningarhæfni er mikill kostur
Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
Góð samstarfshæfni, sveigjanleiki í samskiptum og þjónustumiðuð framkoma
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Spennandi verkefni og gott vinnuumhverfi
Umhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu og eftirlit á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Verkefni stofnunarinnar eru fjölbreytt og starfsumhverfið er metnaðarfullt. Við viljum laða að öflugt fagfólk sem leggur áherslu á stöðugar umbætur, stafræna þróun og miðlun. Umhverfis- og orkustofnun leggur áherslu á heilsu, öryggi og vellíðan og góð skilyrði fyrir starfsfólk til að þróast og eflast í starfi. Starfsaðstaða er víða í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi og við viljum hlýlegt andrúmsloft fyrir allt starfsfólk. Við erum með 36 stunda vinnuviku og sveigjanlegan vinnutíma. Sjá nánari upplýsingar um Umhverfis- og orkustofnun á uos.is.
Starfsstöðvar kringum landiðStarfsstöðvar Umhverfis- og orkustofnunar eru á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og í Reykjavík. Um næstu áramót verða til starfsstöðvar á fleiri stöðum á landinu vegna sameiningar heilbrigðiseftirlita við stofnunina. Starfsfólk okkar getur valið starfsstöð. Gott vinnuumhverfi er okkar markmið, á öllum starfsstöðvum.
Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Þóra Margrét Pálsdóttir Briem sviðsstjóri sem veitir einnig nánari upplýsingar um starfið í síma 569 6000.
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið.
TIL AÐ SÆKJA UM SMELLIÐ HÉR
ATH! Einungis er tekið við umsóknum á 50skills en ekki í gegnum Starfatorg.
Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðssérfræðingur á svið mannauðs og menningar
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.07.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026