Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi á Vesturlandi

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.08.2026

Umsóknarfrestur

21.08.2026

Ráðgjafi á Vesturlandi

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Vesturlandi.

Ráðgjafi þjónustar atvinnuleitendur og atvinnurekendur með það að markmiði að vinna gegn atvinnuleysi. Í starfi sínu þarf ráðgjafi að geta beitt fjölbreyttum aðferðum og myndað tengsl við ólíka aðila til að vinna að hagsmunum atvinnuleitenda og atvinnulífs.

Starfsstöð ráðgjafa er á Akranesi.

Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn ráðgjöf og vinnumiðlun

  • Ráðgjöf og vinnumiðlun við fólk með skerta starfsgetu

  • Ráðgjöf við flóttamenn

  • Skráningar, upplýsingamiðlun og samskipti við fræðsluaðila

  • Kynningar, starfsleitarfundir og umsjón með námskeiðum

  • Koma á og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila

  • Afgreiðslu og símavaktir

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði náms- og starfsráðgjafar, félagsráðgjafar, þroskaþjálfunar eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af ráðgjöf og vinnumiðlun er æskileg

  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góðir skipulagshæfileikar

  • Góð samskiptahæfni, þjónustulund og metnaður til að skila góðu starfi

  • Góð íslensku og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðunin um ráðningu hefur verið tekin. Æskilegt er að viðkomandi geti hafi störf sem fyrst.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Erla Edvardsdóttir

Forstöðumaður á Vesturlandi og Vestfjörðum

Tölvupóstur: erla.edvardsdottir@vmst.is

Sími: 5154800

Birgitta Rut Birgisdóttir

Sérfræðingur í mannauðsdeild

Tölvupóstur: mannaudssvid@vmst.is

Sími: 5154800

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi á Vesturlandi

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.08.2026

Umsóknarfrestur

21.08.2026