Þjónustuaðili
Sjónstöðin
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustustjóri fagþjónustu barna á Sjónstöðinni
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.06.2026
Umsóknarfrestur
06.07.2026
Þjónustustjóri fagþjónustu barna á Sjónstöðinni
Sjónstöðin veitir sérhæfða þjónustu, ráðgjöf og stuðning við einstaklinga með sjónskerðingu og blindu, fjölskyldur þeirra og fagfólk. Markmið stofnunarinnar er að efla sjálfstæði, þátttöku og lífsgæði notenda þjónustunnar með því að tryggja aðgengi að viðeigandi úrræðum, þekkingu og þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónustustjóri barna ber ábyrgð á daglegri stjórnun, skipulagi og þróun starfsemi innan síns starfssviðs. Starfið felur í sér bæði leiðtogahlutverk og virka þátttöku í faglegri þjónustu. Þjónustustjóri starfar einnig á gólfinu með öðrum ráðgjöfum, veitir sérhæfða ráðgjöf og stuðning og gegnir lykilhlutverki í að móta og þróa faglegt starf í kennsluráðgjöf fyrir blind og sjónskert börn og ungmenni. Starfið felur í sér ábyrgð á faglegri ráðgjöf, sjálfstæði, frumkvæði og eftirfylgni með stefnu og áætlunum.
Hæfniskröfur
MA/MS/MEd eða sambærilegt framhaldsnám á háskólastigi
Viðbótarmenntun á sviði blindu og sjónskerðingar eða yfirgripsmikil starfsreynsla á fagsviðinu
Hæfni til að leiða faglega þróun og innleiða bestu starfsvenjur
Geta til að greina flókin mál og finna viðeigandi lausnir
Geta til að taka ákvarðanir og bera ábyrgð á niðurstöðum
Sterk leiðtogahæfni og geta til að leiða teymi
Hæfni í skipulagi, forgangsröðun og eftirfylgd verkefna
Framúrskarandi samskiptahæfni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir því hvernig hann uppfyllir hæfnikröfur auglýsingar
Afrit af prófskírteinum
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Sjónstöðin er þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem er ábyrg og framsækin stofnun sem veitir framúrskarandi heildstæða þjónustu með jafnrétti í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Elfa Svanhildur Hermannsdóttir
forstjóri
Tölvupóstur: elfa.s.hermannsdottir@sjonstodin.is
Sími: 5455800
Þjónustuaðili
Sjónstöðin
Upplýsingar um starf
Starf
Þjónustustjóri fagþjónustu barna á Sjónstöðinni
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.06.2026
Umsóknarfrestur
06.07.2026