Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Skatt­urinn

Upplýsingar um starf

Starf

Starf í lögfræðiinnheimtu á innheimtu- og skráasviði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026

Starf í lögfræðiinnheimtu á innheimtu- og skráasviði

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að ganga til liðs við okkur í lögfræðiinnheimtu í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík. Í lögfræðiinnheimtudeild fer fram vanskilainnheimta og gerð greiðsluáætlana vegna vanskila á sköttum og gjöldum. Deildin er hluti af innheimtu- og skráasviði Skattsins.

Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Upplýsingagjöf varðandi stöðu mála í síma og tölvupósti ásamt móttöku gjaldenda í afgreiðslu Skattsins í Katrínartúni

  • Gerð greiðsluáætlana í samræmi við gildandi verklag

  • Samskipti við gjaldendur vegna aðfarargerða, nauðungarsölu og gjaldþrota

  • Samskipti við sýslumenn og dómstóla vegna afturkallana og frestana

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf, eða annað sambærilegt nám, starfsþjálfun eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli

  • Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.

Öllum umsóknum er svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar. Umsóknir geta gilt í allt að 6 mánuði að loknum umsóknarfresti.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jóhanna Lára Guðbrandsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: johanna.gudbrandsdottir@skatturinn.is

Sími: 442 1000

Þjónustuaðili

Skatt­urinn

Upplýsingar um starf

Starf

Starf í lögfræðiinnheimtu á innheimtu- og skráasviði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026