Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi í kvenna- og barnaþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026

Félagsráðgjafi í kvenna- og barnaþjónustu

Félagsráðgjöf Landspítala leitar að áhugasömum og metnaðarfullum félagsráðgjafa til starfa innan kvenna- og barnaþjónustu á Landspítala. Viðkomandi þarf að búa yfir færni til að vinna að lausnum og hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu. Starfið er laust frá 1. september 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Um er að ræða faglega krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir félagsráðgjafa sem hafa áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu, fjölskyldumiðaða nálgun og gagnreynd vinnubrögð.

Í boði er góð aðlögun fyrir nýútskrifaða félagsráðgjafa sem og reyndari með markvissri handleiðslu og fræðslu. Á Landspítala eru fjölbreytt tækifæri til sí- og endurmenntunar.

Á spítalanum starfa um 50 félagsráðgjafar í þverfaglegum teymum sem sinna margþættri þjónustu við sjúklinga á mismunandi deildum. Landspítali er fjölskylduvænn vinnustaður og býður upp á heilsueflandi vinnuumhverfi, samgöngusamninga og 36 stunda vinnuviku.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða sjúklinga og aðstandendur við að leita félagslegra réttinda

  • Samvinna við aðrar stofnanir í heilbrigðis- og félagsþjónustu

  • Fræðsla til sjúklinga, aðstandenda, samstarfsfólks og starfsfólks annarra stofnana

  • Stuðningur við sjúklinga og aðstandendur við að takast á við breytingar sem verða í kjölfar veikinda

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í þróunarverkefnum sem efla þjónustu við sjúklinga

  • Milliganga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna samkvæmt lögum

  • Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa

  • Áhugi á félagsráðgjöf á heilbrigðissviði

  • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi

  • Reynsla af vinnu með fjölskyldum er kostur

  • Reynsla og þekking á félagslegum úrræðum og samstarfi stofnana

  • Hugarfar þar sem leitast er við að ná stöðugum árangri

  • Góð tölvufærni

  • Frumkvæði, framsýni og lausnamiðuð hugsun í margbreytilegu umhverfi

  • Nálgast áskoranir af jákvæðni

  • Góð íslenskukunnátta

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsækjendur um störf á barnadeildum skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, félagsráðgjafi

Tungumálahæfni: íslenska 4/5 enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Gunnlaug Thorlacius

Tölvupóstur: gunnlth@landspitali.is

Hrönn Ljótsdóttir

Tölvupóstur: hronnl@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsráðgjafi í kvenna- og barnaþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026