
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á slysa- og göngudeild HVE Akranesi, vaktavinna
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Hjúkrunarfræðingur á slysa- og göngudeild HVE Akranesi, vaktavinna
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á slysa- og göngudeildina á Akranesi í vaktavinnu
Um er að ræða 80-100% stöðu. Unnið er á morgun og kvöldvöktum. Ákjósanlegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.
Boðið er upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum.
Á HVE slysa- og göngudeild er góður starfsandi ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni t.d. móttaka slasaðra og bráðveikra, lyfjagjafir o.fl.
Ber ábyrgð á að skipuleggja og framkvæma hjúkrun skjólstæðinga á faglegum forsendum, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu og stefnu HVE. Vinnur undir stjórn deildarstjóra og ber faglega, siðferðislega og lagalega ábyrgð á störfum sínum skv. Siðareglum hjúkrunarfræðinga. Ber ábyrgð á að framfylgja reglum um hreinlæti og smitgát á stofnuninni. Sýnir faglegan metnað og færni og leitast við að viðhalda þekkingu sinni og stuðlar að framþróun í hjúkrun. Þekkir og vinnur eftir Lögum um heilbrigðisstarfsmenn 34/2012.
Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
Hæfniskröfur
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
Starfsleyfi landlæknis.
Reynsla af bráðahjúkrun og/eða reynsla af lyfjagjöfum krabbameinssjúklinga er kostur.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, umbótahugsun, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Sótt er um starfið rafrænt á starfatorg.is
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Staðfesting á bólusetningum.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á slysa- og göngudeild HVE Akranesi, vaktavinna
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026