Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á dagdeild skurðlækninga A4 í Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

07.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026

Sjúkraliði á dagdeild skurðlækninga A4 í Fossvogi

Óskað er eftir metnaðarfullum sjúkraliða í öflugan hóp starfsfólks á dagdeild skurðlækninga A4 í Fossvogi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og bjóðum upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Starfshlutfall og upphaf starfs er eftir samkomulagi.

Dagdeild skurðlækninga heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa um 30 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Í boði er fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf í sérhæfðu starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og þverfaglegt samstarf. Deildin tekur á móti sjúklingum á öllum aldri (börnum og fullorðnum) sem fara í aðgerðir á Landspítala í Fossvogi, þ.m.t. í háls-, nef- og eyrnalækningum, lýta-, æða-, heila-, tauga- og bæklunarskurðaðgerðir.

Á deildina leggjast inn sjúklingar sem fara í dagaðgerðir ásamt sjúklingum sem þarfnast innlagnar á öðrum legudeildum að aðgerð lokinni. Deildin sinnir einnig sjúklingum fyrir og eftir inngrip á vegum röntgen- og lungnalækna og tekur á móti bráðasjúklingum, t.d. frá bráðamóttöku, öðrum sjúkrahúsum eða að heiman.Opnunartími deildarinnar er frá 07:00 til 22:00 á virkum dögum. Vinnutímaskipulag er tvískipt vaktavinna.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrun sjúklinga í samvinnu við annað heilbrigðisstarfsfólk

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar

  • Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu við sjúklinga deildarinnar

  • Upplýsingagjöf til sjúklinga og aðstandenda

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Faglegur metnaður og frumkvæði

  • Sveigjanleiki, jákvætt viðhorf og góðir samskiptahæfileikar

  • Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og vinna í teymi

  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Edda Dröfn Daníelsdóttir

Tölvupóstur: eddadd@landspitali.is

Sími: 824-6014

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á dagdeild skurðlækninga A4 í Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

07.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026