Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

12.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild Fossvogi

Ertu góður liðsmaður og langar þig að starfa í starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?

Við sækjumst eftir sjúkraliðum, bæði reynslumiklum sem og nýútskrifuðum í okkar góða hóp, ásamt því að bjóða sjúkraliðanemum lærdómstækifæri. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði og eru störfin laus samkvæmt samkomulagi.

Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Starfsandi á deildinni er mjög góður og tekið vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Þátttaka í fjölskylduhjúkrun

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða/vottun um launað starfsnám

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni

  • Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með lungnasjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5,

Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 20-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Árný Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: gudrgudm@landspitali.is

Sími: 824-6019

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

20-100%

Starf skráð

12.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026