
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur óskast á heilsugæslu HSU Selfossi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.07.2026
Umsóknarfrestur
23.07.2026
Hjúkrunarfræðingur óskast á heilsugæslu HSU Selfossi
Ertu hjúkrunarfræðingur sem leitar að fjölbreyttu, krefjandi og gefandi starfi þar sem engir tveir dagar eru eins? Langar þig að starfa í öflugum og samheldnum hópi fagfólks sem vinnur saman að því að veita framúrskarandi þjónustu?
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) leitar að jákvæðum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til að ganga til liðs við frábært teymi á Heilsugæslunni á Selfossi.
Hjá okkur færð þú tækifæri til að sinna fjölbreyttum verkefnum í öflugu faglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, þróun og gæði í þjónustu. Starfið býður upp á víðtæka reynslu, fjölbreytt viðfangsefni og einstakt tækifæri til að vaxa í starfi innan heilsugæslunnar
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverjum tíma.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Við hlökkum til að fá þig í hópinn!
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í fjölbreyttum verkefnum heilsugæsluhjúkrunar auk heimahjúkrunar á þjónustusvæði heilsugæslu HSU.
Starfið er fjölbreytt með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
Samstarf við aðra faghópa og þátttaka í teymisvinnu.
Stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur með virðingu og umhyggju.
Hæfniskröfur
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
Starfsleyfi landlæknis.
Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Hægt er að semja um hlutastarf
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Björk Ólafsdóttir
Tölvupóstur: margret.b.olafsdottir@hsu.is
Anna Margrét Magnúsdóttir
Tölvupóstur: anna.m.magnusdottir@hsu.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur óskast á heilsugæslu HSU Selfossi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.07.2026
Umsóknarfrestur
23.07.2026