
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarkennari í dag- og kvöldskóla í FB
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-75%
Starf skráð
01.07.2026
Umsóknarfrestur
31.07.2026
Hjúkrunarkennari í dag- og kvöldskóla í FB
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti óskar eftir kennara í hjúkrunargreinum á sjúkraliðabraut til að kenna öldrunarhjúkrun í dag- og kvöldskóla og sjúkdómafræði í kvöldskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennari ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi, námsmati og faglegu samstarfi ásamt gerð kennsluáætlana og prófa. Skólinn notar Innu upplýsingakerfi og Teams hópvinnukerfi sem kennari þarf að vera tilbúinn til að vinna með.
Hæfniskröfur
Lögð er áhersla á háskólamenntun í hjúkrun, kennsluhæfni, mjög góða samskiptahæfni og ríkan samstarfsvilja í faglegu og þverfaglegu samstarfi. Einnig er lögð áhersla á frumkvæði í starfi, sjálfstæð vinnubrögð, áhuga og áreiðanleika.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Tekið er mið af Jafnréttisáætlun FB við starfsráðningar og allir sem uppfylla hæfniskröfur eru hvattir til að sækja um starfið. Jafnréttisáætlun skólans er ætlað að stuðla að jafnri stöðu og virðingu innan skólans og minna á mikilvægi þess að starfsfólk og nemendur fái notið sín án tillits til kynferðis, aldurs, kynþáttar, kynhneigðar, fötlunar, þjóðernis, trúarskoðana eða stjórnmálaskoðana.
Við ráðningu skulu liggja fyrir afrit prófskírteina, leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari sbr. lög nr. 95/2019 og sakavottorð.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður verknám, listnám og bóknám til lokaprófs úr framhaldsskóla.Á heimasíðunni, www.fb.is er að finna upplýsingar um stefnu skólans:Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er skóli Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.Sýn okkar er að við eflum fólk til þess að skapa kærleiksríkt sjálfbært samfélag.Gildi skólans eru virðing, fjölbreytni og sköpunarkraftur.Stefnumið skólans eru að við:- leggjum áherslu á frið, lýðræði, réttlæti, jöfnuð og jafnrétti- vinnum saman að góðum námsárangri allra nemenda- menntum nemendur til að stuðla að sjálfbærni og virða líf og umhverfi- stuðlum að vellíðan og valdeflingu nemenda og starfsfólks- leggjum áherslu á góða samvinnu, hvetjandi og nærandi samskipti- iðkum, kennum og hlúum að nýsköpun- ræktum góð tengsl út á við og vinnum með nærsamfélagi skólans.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi í gegnum ráðningarkerfi Oracle, sjá tengil hér að neðan. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Haldið verður eftir afriti af umsóknargögnum í samræmi við ákvæði laga um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985. Áskilinn er réttur til að nýta auglýsinguna í 6 mánuði frá ráðningu.
Starfshlutfall er 50-75%
Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarkennari í dag- og kvöldskóla í FB
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-75%
Starf skráð
01.07.2026
Umsóknarfrestur
31.07.2026