Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

22.07.2026

Umsóknarfrestur

07.08.2026

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild Landakoti

Sérhæfð hjúkrun á göngudeild þar sem heilabilun er í brennidepli. Tækifæri fyrir framsækinn hjúkrunarfræðing!

Á göngudeild Landakoti vinnur fjölfaglegt teymi að því að veita einstaklingsmiðaða umönnun og stuðning fyrir einstaklinga og aðstandendur þeirra sem búa heima.

Við leitum eftir faglegum, áhugasömum, sjálfstæðum og glaðlegum hjúkrunarfræðingi til að ganga til liðs við okkur. Við veitum þér einstaklingsmiðaða aðlögun í upphafi starfsins.

Starfshlutfall er 80-100% eða eftir nánara samkomulagi. Upphaf starfa er samkvæmt samkomulagi en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Unnið er á tímabilinu frá kl. 8-16 virka daga eða eftir samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir.

Á deildinni er góður starfsandi og unnið lausnamiðað í samstarfi við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra. Virkt endurmenntunarkerfi er á deildinni, deildin er með vikulega fræðslufundi og stendur fyrir fræðsludegi einu sinni á ári. Sérhæfðar ráðstefnur heimsóttar á tveggja ára fresti.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingar deildarinnar eru hluti af öflugu þverfaglegu teymi sem vinnur saman að því að meta heilsufar, færni og þjónustuþörf skjólstæðinga og veita þeim heildræna hjúkrun, meðferð, ráðgjöf og eftirfylgd. Stór þáttur starfsins felst í fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra.

Í starfinu felst meðal annars að:

  • Meta heilsufar, færni og þjónustuþörf skjólstæðinga

  • Veita hjúkrun, fræðslu, ráðgjöf og stuðning til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra

  • Vera tengiliður skjólstæðinga og aðstandenda við aðra þjónustu- og meðferðaraðila

  • Sinna sjálfstæðum hjúkrunarmóttökum og veita daglega símaráðgjöf

  • Taka þátt í sérhæfðum móttökum, svo sem minnismóttökum, byltu- og beinverndarmóttökum og almennum móttökum

  • Stuðla að aukinni virkni skjólstæðinga og styðja þá til sjálfstæðrar búsetu eins lengi og kostur er

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð samskiptahæfni

  • Áhugi á umbótum og þróun öldrunarþjónustu

  • Þekking á þjónustuúrræðum og reynsla í hjúkrun aldraðra er kostur

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Túngata, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Atladóttir

Tölvupóstur: helgaat@landspitali.is

Sími: 620-1640

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild Landakoti

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

22.07.2026

Umsóknarfrestur

07.08.2026