Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstaða í heimilislækningum

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Sérnámsstaða í heimilislækningum

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) auglýsir tvær sérnámsstöður í heimilislækningum lausar til umsóknar, með aðalstarfsstöð á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 100% og stöðurnar veitast frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

HSA hefur langa reynslu af kennslu læknanema, kandídata og sérnámslækna í heimilislækningum. Námið fer fram samkvæmt marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum með tryggu aðgengi sérnámslæknisins að faglegri handleiðslu og virkri þátttöku í skipulagðri hópkennslu samkvæmt kennsluskrá. Sérstök áhersla er á heildrænan fjölbreytileika héraðslækninga með auknu bráðaviðbragði og hagnýtt gildi: Heilurðar (Salutogenesis) samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðrar Heilsu (Positive Health).

Helstu verkefni og ábyrgð

Almennar lækningar

- Heilsuvernd

- Vaktþjónusta

- Þátttaka í kennslu læknanema og sérnámsgrunnslækna

Hæfniskröfur

Almennt lækningaleyfi er skilyrði, sem og að lokið sé sérnámsgrunnsári. Læknisfræðileg reynsla og/eða viðurkennt skipulagt sérnám í bráðalækningum er kostur. Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki. Vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu). Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og faglegur metnaður. Íslenskukunnátta að því marki að samskipti og skráning geti farið fram á íslensku er áskilin. Ökuleyfi er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eyjólfur Þorkelsson

Tölvupóstur: eyjolfur.thorkelsson@hsa.is

Fanney Vigfúsdóttir

Tölvupóstur: fanney.vigfusdottir@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstaða í heimilislækningum

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026