Þjónustuaðili
Alþingi
Upplýsingar um starf
Starf
Við leitum að starfsfólki í ræstingateymi hjá skrifstofu Alþingis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026
Við leitum að starfsfólki í ræstingateymi hjá skrifstofu Alþingis
Skrifstofa Alþingis leitar að tveimur drífandi og jákvæðum liðsfélögum til starfa í ræstingateymi skrifstofunnar. Um er ræða eitt framtíðarstarf og eitt tímabundið starf. Vinnutíminn er frá kl. 7-15 alla virka daga auk tilfallandi yfirvinnu. Starfsfólk teymisins annast þrif í öllu húsnæði Alþingis. Við leitum að einstaklingum sem vilja taka þátt í að byggja upp góðan vinnustað þar sem metnaður er lagður í að skapa góðar vinnuaðstæður og hvetjandi umhverfi fyrir starfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þrif á skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á starfssvæði Alþingis
Önnur verkefni í öryggis- og þjónustudeild
Hæfniskröfur
Reynsla af sambærilegu starfi er nauðsynleg
Reynsla af vinnu í teymi er kostur
Góð samskiptafærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Metnaður og ábyrgð í starfi
Vandvirkni og snyrtimennska
Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Efling stéttarfélag hafa gert.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið í ráðningarkerfi Orra. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Tekið er mið af jafnréttisáætlun skrifstofu Alþingis við ráðningar. Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um. Gildi skrifstofu Alþingis eru fagmennska, virðing og framsækni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Alþingi
Upplýsingar um starf
Starf
Við leitum að starfsfólki í ræstingateymi hjá skrifstofu Alþingis
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026