Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunardeild

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

30.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunardeild

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum hjúkrunarfræðingum til starfa á hjúkrunardeild HSS. Deildin er skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu. Um er að ræða vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingar vinna á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.

Þeir starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og vandvirkni

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Hlýtt og jákvætt viðmót

  • Starfsreynsla er kostur

  • Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Vigdís Elísdóttir

Tölvupóstur: vigdis.elisdottir@hss.is

Sími: 4220500

Helga Signý Hannesdóttir

Tölvupóstur: helga.s.hannesdottir@hss.is

Sími: 4220500

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunardeild

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

30.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026