Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérhæft og fjölbreytt starf í sjúkraþjálfun og sundlaug Grensáss

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.07.2026

Umsóknarfrestur

07.08.2026

Sérhæft og fjölbreytt starf í sjúkraþjálfun og sundlaug Grensáss

Við leitum að jákvæðum, þjónustulunduðum og ábyrgum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í sérhæfðu endurhæfingarumhverfi. Þú tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum og vinnur náið með öflugu teymi.

Starfið er tvíþætt og felst annars vegar í verkefnum innan sjúkraþjálfunar og hins vegar í starfi sundlaugarvarðar.

Um er að ræða 100% starf í dagvinnu.

Í Sjúkraþjálfun Grensáss starfar öflugt teymi sem sinnir sérhæfðri og fjölbreyttri endurhæfingu einstaklinga með meðal annars skaða á miðtaugakerfi, fjöláverka, aflimanir og aðra endurhæfingarþörf. Við leggjum áherslu á fagmennsku, góða samvinnu og jákvætt starfsumhverfi.

Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun og stuðning við upphaf starfs.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og vellíðan samstarfsfólks og styðja við gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoð og eftirlit með sundlaugargestum í búningsklefum og sundlaugarsvæði

  • Sinnir eftirliti í tækjasal og aðstoðar sjúkraþjálfara við meðferð

  • Móttaka og skráning í þjálfun og í sund

  • Eftirlit með tækjabúnaði og mælingar á klór í sundlaug

  • Umsjón með rekstarvörum og frágangur á þjálfunar-og laugarsvæði

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Reynsla af umönnunarstörfum er æskileg

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi

  • Sjálfstæði og skipulagshæfni í vinnubrögðum

  • Metnaður og frumkvæði í starfi

  • Viðkomandi þarf að vera syndur og öruggur í vatni. Hæfnispróf fyrir laugarverði er tekið eftir að viðkomandi hefur hafið störf

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, endurhæfing, sérhæfður starfsmaður, starfsmaður

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Álmgerði, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ída Braga Ómarsdóttir

Tölvupóstur: idabraga@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérhæft og fjölbreytt starf í sjúkraþjálfun og sundlaug Grensáss

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.07.2026

Umsóknarfrestur

07.08.2026