Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í byggingarverkfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.06.2026

Umsóknarfrestur

11.08.2026

Doktorsnemi í byggingarverkfræði

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í byggingarverkfræði við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands. Verkefnið er á sviði jarðtæknilegrar jarðskjálftaverkfræði (e. geotechnical earthquake engineering) og miðar að því að auka skilning á ysjunar- og sveiflufræðilegum eiginleikum íslenskra jarðefna. Verkefnið er styrkt til þriggja ára af Doktorsstyrkjasjóði HÍ.

Jarðtæknilegar aðstæður á Íslandi eru um margt sérstakar og því illmögulegt að heimfæra niðurstöður rannsókna á erlendum jarðefnum upp á aðstæður hérlendis. Ysjunar- og sveiflufræðilegir eiginleikar íslenskra jarðefna hafa lítið verið rannsakaðir. Það sama gildir um áhrif sveifluvíxlverkunar (e. soil-structure interaction) á milli undirstaðna og jarðvegsins í jarðskjálftum. Verkefninu er ætlað að auka skilning á þessum þáttum.

Doktorsneminn mun vinna að því að afla upplýsinga um og greina sveiflufræðilega hegðun íslenskra sendinna/syltríkra jarðefna, þar með talið mótstöðu efnisins gegn ysjun í jarðskjálftum og víxlverkunum jarðefnanna við undirstöður mannvirkja. Niðurstöður tilraunastofu- og feltprófana verða nýttar til að sannreyna efnislíkön sem lýsa spennu-streitu sambandi jarðvegs og sveifluvíxlverkun, með það að markmiði að aðlaga þau að sérstökum eiginleikum íslenskra jarðefna. Þá verður töluleg greining nýtt til þess að meta sveiflumögnun lausra jarðlaga við aðstæður hérlendis og jarðskjálftasvörun undirstaðna sem grundaðar eru í lausum jarðvegi sem viðkvæmur er fyrir ysjun.

Leiðbeinendur eru Elín Ásta Ólafsdóttir, lektor, og Sigurður Erlingsson, prófessor.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ítarleg greining á niðurstöðum fyrri rannsókna.

  • Vettvangsvinna, þ.e. afla jarðsýna og framkvæma mælingar í felti.

  • Prófanir á rannsóknarstofu, greining og túlkun gagna.

  • Þróa, sannreyna og beita efnislíkönum sem lýsa spennu-streitu sambandi íslensks jarðvegs og sveifluvíxlverkun milli jarðvegsins og undirstaðna mannvirkja.

  • Vinna að rannsóknaverkefnum innan fagsviðsins sem lýst er hér að ofan.

  • Kynna rannsóknaniðurstöður á fundum, innlendum og erlendum ráðstefnum og með ritrýndum vísindagreinum.

  • Taka þátt í að leiðbeina vinnu við lokaverkefni meistaranema og taka þátt í samstarfsverkefnum á sviði doktorsverkefnisins.

  • Taka niðurstöður verkefnisins saman í doktorsritgerð undir lok námstímans.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í byggingarverkfræði eða skyldri grein. Meistaragráðu skal vera lokið þegar starf hefst.

  • Góð almenn hæfni í forritun í Python eða MATLAB.

  • Reynsla af því að nota forrit til tölulegra útreikninga í jarðtækni (t.d. Plaxis, RS2/RS3 eða OpenSees) er kostur.

  • Reynsla af jarðtækniprófunum á rannsóknastofu og/eða feltvinnu í jarðtækni er kostur.

  • Geta til að vinna sjálfstætt á skipulagðan hátt, sem og í teymi.

  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli. Íslenskukunnátta er kostur.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og í að miðla niðurstöðum verkefna í rituðu og töluðu máli.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af deild.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf á vormisseri 2027 eða samkvæmt samkomulagi.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og aðra hæfni og ritaskrá (ef einhver er).

  • Kynningarbréf (allt að 2 bls.) þar sem kemur fram hvað vekur áhuga umsækjanda á verkefninu, hvað umsækjandi telur sig hafa fram að færa og hvaða væntingar umsækjandi hefur til doktorsnámsins.

  • Afrit af prófskírteinum (grunnnám og meistaranám) eða staðfesting á áætlaðri útskrift úr meistaranámi. Staðfest afrit af námsárangri í námskeiðum.

  • Afrit af meistaraprófsritgerð.

  • Nöfn á tveimur umsagnaraðilum, upplýsingar um tengsl þeirra við umsækjanda og hvernig hægt er að hafa samband við þá.

  • Staðfesting á enskukunnáttu (t.d. niðurstöður úr TOEFL/IELTS/sambærilegum prófum eða stúdentspróf í ensku úr íslenskum framhaldsskóla).

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

viðkomandi stéttarfélag Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. is en,is en

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elín Ásta Ólafsdóttir

Tölvupóstur: elinasta@hi.is

Sigurður Erlingsson

Tölvupóstur: sigger@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í byggingarverkfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.06.2026

Umsóknarfrestur

11.08.2026