
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
18.08.2026
Forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands
Laust er til umsóknar fullt starf forstöðumanns Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands.
Forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra leiðir starfsemi stofnunarinnar sem þverfræðilegrar rannsóknastofnunar innan Háskóla Íslands á Hólum. Hann er næsti yfirmaður forstöðumanna einstakra rannsóknasetra og annars starfsfólks stofnunarinnar. Undir stofnunina heyra 13 rannsóknasetur víðs vegar um landið.
Markmið stofnunarinnar er að efla rannsóknir, samstarf og samfélagsvirkni rannsóknasetra Háskóla Íslands um land allt, tryggja faglegt sjálfstæði þeirra og skapa sameiginlega umgjörð um þróun, rekstur, stefnumótun og sýnileika starfseminnar.
Starfsstöð forstöðumannsins verður við Háskóla Íslands á Hólum en hann mun jafnframt hafa aðgang að vinnuaðstöðu í Háskóla Íslands í Reykjavík í tengslum við vinnuferðir þangað.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða og samhæfa heildarstarfsemi stofnunarinnar, m.a. rekstur, stjórnun og mannauðsmál
Stýra undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgni stefnumótunar
Hafa yfirumsjón með fjármálum stofnunarinnar og gerð fjárhags- og rekstraráætlana
Styðja og efla samstarf setranna sín á milli sem og við samstarfsaðila
Hæfniskröfur
Meistarapróf sem nýtist í starfi, doktorspróf er kostur
Leiðtogahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
Reynsla af rekstri og fjárhagsáætlanagerð er æskileg
Reynsla af stefnumótun er æskileg
Reynsla af háskólastarfi og/eða rannsóknum er æskileg
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sæunn Stefánsdóttir
fráfarandi forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ
Tölvupóstur: saeunnst@hi.is
Sími: 5254010

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
18.08.2026