Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Samskiptamið­stöð heyrn­ar­lausra og heyrn­ar­skertra

Upplýsingar um starf

Starf

Táknmálstúlkur - tímabundin ráðning

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

02.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Táknmálstúlkur - tímabundin ráðning

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra auglýsir lausa til umsóknar stöðu táknmálstúlks. Um er að ræða tímabundna ráðningu í allt að 12 mánuði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Störf táknmálstúlka heyra undir túlkunarsvið stofnunarinnar. Verkefni táknmálstúlka tengjast vinnu við íslenskt táknmál, einna helst táknmálstúlkun og þýðingum. Auk þess taka þeir þátt í ýmsum verkefnum á starfssviði stofnunarinnar sem þeim eru falin.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í táknmálsfræði og táknmálstúlkun.

  • Gott vald á íslensku táknmáli.

  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti.

  • Gott vald á ensku æskilegt.

  • Bílpróf æskilegt.

  • Reynsla af táknmálstúlkun kostur.

  • Frumkvæði og geta til að starfa bæði sjálfstætt og í teymisvinnu.

  • Góð samskiptafærni, þjónustulund, stundvísi og skipulagshæfileikar.

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra er málstöð íslensks táknmáls og starfar fyrir táknmálssamfélagið á Íslandi. Við viljum ráða fagfólk sem hefur einlægan áhuga á íslensku táknmáli og metnað fyrir táknmálstúlkun. Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur fólk sem vill starfa í anda gilda okkar; frumkvæði, samvinna og virðing.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Umsóknum skulu fylgja prófskírteini, ítarleg náms- og starfsferilskrá, upplýsingar um mögulega umsagnaraðila auk kynningarbréfs. Í kynningarbréfi skal gerð grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins.

Við ráðningu er jafnréttisáætlun stofnunarinnar fylgt. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Öll starfsviðtöl fara fram bæði á íslensku og íslensku táknmáli og umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir að gangast undir færnimat í íslensku táknmáli og túlkun.

Starfið er staðbundið og gert er ráð fyrir að það sé unnið að mestu á starfsstöð stofnunarinnar og á vettvangi túlkunar á höfuðborgarsvæðinu og í nærliggjandi sveitarfélögum.

Samskiptamiðstöð er heilsueflandi vinnustaður sem leggur áherslu á að efla mannauð og stuðla að góðri heilsu og líðan starfsmanna.

Á heimasíðu stofnunarinnar www.shh.is má finna upplýsingar um stofnunina og starfsemi hennar.

Auglýst er eftir táknmálstúlki í fullt starf í dagvinnu (100% starfshlutfall) auk möguleika á eftirspurnartengdri yfirvinnu á kvöldin og um helgar. Hlutastarf er þó einnig möguleiki.

Æskilegt er að umsækjendur geti a.m.k. unnið á tímabilinu 1. október 2026 til 10. júní 2027 en upphafs- og lokatími tímabundinnar ráðningar er sveigjanlegur.

- - - - -

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Anna Dagmar Daníelsdóttir

sviðsstjóri túlkunarsviðs

Tölvupóstur: anna.dagmar.danielsdottir@shh.is

Sími: 5627702

Kristín Lena Þorvaldsdóttir

forstöðumaður

Tölvupóstur: kristin.lena.thorvaldsdottir@shh.is

Sími: 8207739

Þjónustuaðili

Samskiptamið­stöð heyrn­ar­lausra og heyrn­ar­skertra

Upplýsingar um starf

Starf

Táknmálstúlkur - tímabundin ráðning

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

02.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026