
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi óskast til starfa hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
19.08.2026
Iðjuþjálfi óskast til starfa hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða metnaðarfullann og lausnamiðann Iðjuþjálfa til starfa. Starf Iðjuþjálfa er samvinnuverkefni HSU og sveitafélaga á Suðurlandi í þjónustu við börn og ungmenni og í málefnum fatlaðra. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefast til að hafa jákvæð áhrif á líf og velferð þjónustuþega.
Um er að ræða 80 % afleysingarstarf í eitt ár og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánari samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklingsmat á börnum samkvæmt tilvísun
Ráðgjöf í leik- og grunnskólum
Fræðsla til starfsfólks
Einstaklingsþjálfun
Samvinna við fjölskyldur, skóla, heilbrigðisfólk og aðra þjónustuaðila
Þáttaka í þverfaglegu samstarfi
Hjálpartækjaumsóknir
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs
Jákvætt viðmót og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
Mjög góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir heilsugæslu-, sjúkrahúss- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Við bjóðum meðal annars upp á krefjandi og fjölbreytt starf í jákvæði starfsumhverfi, tækifæri til faglegrar þróunar og endurmenntunar og öflugt samstarf við fagfólk úr ólíkum greinum.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá.
Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og afrit af starfsleyfi.
Afleysingarstarf í 1 ár, upphafsdagur 1.september 2026 eða eftir samkomulag.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 19.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi óskast til starfa hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
30.07.2026
Umsóknarfrestur
19.08.2026