
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður og rannsóknalektor við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Eskifirði
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026
Forstöðumaður og rannsóknalektor við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Eskifirði
Laust er til umsóknar fullt starf forstöðumanns, sem jafnframt er rannsóknalektor, við nýtt Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Eskifirði.
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Eskifirði verður þrettánda setrið undir Stofnun rannsóknasetra HÍ og jafnframt það fyrsta sem starfar á sviði menntavísinda. Setrið verður til húsa í nýuppgerðum gamla barnaskólanum á Eskifirði. Forstöðumaðurinn verður starfsmaður Háskóla Íslands og mun hafa starfsstöð og gegna starfi sínu frá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Eskifirði.
Markmið Stofnunar rannsóknasetra er m.a. að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni og vera vettvangur samstarfsverkefna háskólans við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni. Rannsóknir eru meginviðfangsefni rannsóknasetranna og eru viðfangsefnin fjölbreytt og tengjast nærumhverfi setranna með einhverjum hætti. Lögð er rík áhersla á árangur í starfi, áhrif og gæði rannsókna og hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirumsjón með starfsemi setursins, fjármálum og daglegum rekstri
Rannsóknir á fræðasviði viðkomandi
Skipulagning rannsókna og samstarfsverkefna
Áætlanagerð og sókn í rannsóknasjóði
Möguleg leiðbeining framhaldsnema og kennsla á háskólastigi
Tengja starfsemi rannsóknasetursins við nærumhverfi sitt og koma á tengslum við samstarfsstofnanir á sama sviði
Hæfniskröfur
Doktorspróf á sviði menntavísinda eða skyldra greina
Reynsla af rannsóknum á sviði menntavísinda
Reynsla af stjórnun verkefna og/eða stjórnun með mannaforráðum er æskileg
Reynsla af alþjóðasamstarfi sem og reynsla af þverfræðilegu samstarfi er æskileg
Reynsla af sókn í innlenda sem og erlenda rannsóknasjóði er kostur
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt lipurð í mannlegum samskiptum
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknaráform ef til ráðningar kemur þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi hyggst tengja rannsóknir sínar við nærumhverfi setursins
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sæunn Stefánsdóttir
Tölvupóstur: saeunnst@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðumaður og rannsóknalektor við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Eskifirði
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026