
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingsstaða við Lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Selfossi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
25.06.2026
Umsóknarfrestur
17.07.2026
Sérfræðingsstaða við Lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Selfossi
Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í lyflækningum við Lyflækningadeild Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi.
Lyflækningadeild er 22 rúma deild sem sinnir almennum lyflækningum, öldrunarlækningum, endurhæfingu og líknandi meðferð. Á deildinni starfa lyflæknar með sérfræðiviðurkenningu í krabbameinslækningum, hjartalækningum, lungnalækningum, öldrunarlækningum og meltingarfæralækningum.
Læknar lyflækningadeildar HSU taka þátt í þjálfun læknanema, sérnámsgrunnlækna og sérnámslækna. Starfinu fylgir vaktskylda, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þar með talið læknanema og sérnámslækna, auk tækifæra til rannsóknavinnu.
Jafnframt felur starfið í sér göngudeildarstarfsemi og ráðgjöf til lækna bráðalyflækningadeild HSU á sviði lyflækninga, sem og til lækna annarra eininga á HSU.
Helstu verkefni og ábyrgð
Göngudeildarþjónusta
Ráðgjöf þvert á stofnun
Starfinu fylgir vaktskylda
Þátttaka í gæðastarfi og faglegri þróun
Þáttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun sérnámslækna og önnur sérverkefni í samráði við yfirlækni
Hæfniskröfur
Íslenskt læknaleyfi
Gerð er krafa um sérfræðiviðurkenningu í lyflækningum eða öðrum sjúkrahússlækningum og æskilegt er ef umsækjandi hafi sérfræðiviðurkenningu í einhverri undirsérgrein lyflækninga þó það sé ekki skilyrði.
Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
Ef Íslenska er ekki móðurmál þá er gerð krafa um góða færni og þekkingu í ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Starfið veitist samkvæmt samkomulagi
Starfshlutfall er samkomulag
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi ásamt ítarlegri ferilskrá
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helgi Hafsteinn Helgason
Tölvupóstur: helgi.h.helgason@hsu.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingsstaða við Lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Selfossi
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
25.06.2026
Umsóknarfrestur
17.07.2026