Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur í sálfræðiþjónustu barna á HSN

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

01.07.2026

Umsóknarfrestur

13.07.2026

Sálfræðingur í sálfræðiþjónustu barna á HSN

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) leitar að sálfræðingi í sálfræðiteymi barna. Við óskum eftir drífandi, metnaðarfullum og jákvæðum sálfræðingi sem hefur áhuga á að vinna samkvæmt klínískum leiðbeiningum við mat og meðferð barna og ungmenna með algengan geðvanda.

Sálfræðiteymi barna sinnir mati og ráðgjöf vegna barna með vægan til miðlungsalvarlegan geðrænan vanda frá leikskólaaldri að 18 ára aldri. Lögð er áhersla á gagnreynt verklag, bæði í einstaklingsmeðferð og foreldramiðaðri meðferð. Greiningar á taugaþroskavanda eru ekki gerðar í teyminu.

Sálfræðingar af öllum kynjum, reynslumiklir jafnt sem reynsluminni eru hvattir til þess að sækja um starfið. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfstöðvum HSN. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining vægra til miðlungsalvarlegra einkenna kvíða, þunglyndis og áfallastreituröskunar hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri

  • Meðferð vægra til miðlungsalvarlegra einkenna kvíða, þunglyndis og áfallastreituröskunar hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri

  • Stutt uppeldisráðgjöf til foreldra

  • Þátttaka í frekari uppbyggingu gagnreyndrar geðheilbrigðisþjónustu við börn á þjónustusvæði HSN

  • Samstarf við aðrar fagstéttir og þjónustuveitendur

Hæfniskröfur

  • Sálfræðingur með löggildingu og réttindi til starfa á Íslandi

  • Frumkvæði, áhugi og metnaður fyrir því að veita árangursríka, gagnreynda meðferð

  • Þekking og reynsla af notkun sálfræðilegra matstækja og greiningu algengustu geðraskana barna og ungmenna er kostur

  • Þekking á gagnreyndum meðferðarúrræðum við geðröskunum barna og ungmenna er kostur, bæði einstaklings- hóp- og foreldramiðaðri meðferð

  • Þó ekki séu gerðar greiningar á taugaþroskavanda í teyminu þá er slík þekking kostur

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

  • Gott orðspor, hreint sakavottorð og ökuleyfi

  • Lausnamiðuð hugsun, góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og hlýtt viðmót

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi okkar eru Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Alice Harpa Björgvinsdóttir

forstöðumaður sálfélagslegra þjónustu

Tölvupóstur: alice.harpa.bjorgvinsdottir@hsn.is

Sími: 432 4970

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur í sálfræðiþjónustu barna á HSN

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

01.07.2026

Umsóknarfrestur

13.07.2026