
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga A4 í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga A4 í Fossvogi
Óskað er eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í öflugan hóp starfsfólks á dagdeild skurðlækninga A4 í Fossvogi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og bjóðum upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag.
Dagdeild skurðlækninga A4 heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa um 30 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Í boði er fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf í sérhæfðu starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og þverfaglegt samstarf. Deildin tekur á móti sjúklingum á öllum aldri (börnum og fullorðnum) sem fara í aðgerðir á Landspítala í Fossvogi, þ.m.t. í háls-, nef- og eyrnalækningum, lýta-, æða-, heila-, tauga- og bæklunarskurðaðgerðir.
Á deildina leggjast inn sjúklingar sem fara í dagaðgerðir ásamt sjúklingum sem þarfnast innlagnar á öðrum legudeildum að aðgerð lokinni. Deildin sinnir einnig sjúklingum fyrir og eftir inngrip á vegum röntgen- og lungnalækna og tekur á móti bráðasjúklingum, t.d. frá bráðamóttöku, öðrum sjúkrahúsum eða að heiman.Opnunartími deildarinnar er frá 07:00 til 22:00 á virkum dögum. Vinnutímaskipulag er tvískipt vaktavinna.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning og framkvæmd hjúkrunarmeðferðar
Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar
Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu við sjúklinga deildarinnar
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Upplýsingagjöf til sjúklinga og aðstandenda
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og frumkvæði
Sveigjanleiki, jákvætt viðhorf og góðir samskiptahæfileikar
Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og vinna í teymi
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á dagdeild skurðlækninga A4 í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026