Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Saksóknarfulltrúar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Saksóknarfulltrúar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsir þrjár stöður saksóknarfulltrúa á ákærusviði embættisins.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir metnaðarfulla lögfræðinga sem hafa áhuga á refsirétti og meðferð sakamála og vilja starfa í öflugu og faglegu umhverfi þar sem reynir á sjálfstæði, frumkvæði og samskiptahæfni.

Ákærusvið embættisins annast ákærumeðferð sakamála og bera saksóknarfulltrúar ábyrgð á meðferð þeirra mála sem þeim eru falin, allt frá yfirferð rannsóknargagna og ákvörðunum um framhald mála til flutnings þeirra fyrir dómstólum. Starfið felur jafnframt í sér náið samstarf við rannsóknarlögreglumenn, lögreglumenn, aðra ákærendur og fjölmarga ytri samstarfsaðila.

Starf saksóknarfulltrúa er fjölbreytt og krefjandi. Í starfinu felst veruleg ábyrgð og álag getur verið mikið á köflum. Leitað er að einstaklingum sem búa yfir faglegu öryggi, jákvæðni, góðri hæfni til forgangsröðunar og getu til að vinna markvisst undir álagi bæði sjálfstætt og í hóp. Að auki þarf viðkomandi að geta tryggt fagmennsku, gæði og vandaða málsmeðferð.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 500 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirferð sakamála og ákvörðun um lok þeirra, þar á meðal ákærumeðferð.

  • Mat á rannsóknargögnum og leiðbeiningar vegna rannsóknar mála eftir því sem við á.

  • Gerð ákæra og annarra ákvarðana samkvæmt lögum um meðferð sakamála.

  • Flutningur sakamála fyrir dómstólum.

  • Samskipti og samstarf við rannsóknarlögreglumenn, lögmenn, dómstóla, stjórnvöld og aðra samstarfsaðila.

Hæfniskröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.

  • Reynsla af störfum hjá ákæruvaldinu er kostur.

  • Reynsla af málflutningi og/eða meðferð sakamála er kostur.

  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til samstarfs.

  • Jákvætt viðhorf, umburðarlyndi og fagleg framkoma.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og góð skipulagshæfni.

  • Lausnamiðuð hugsun, ábyrgðarkennd og metnaður til að ná árangri.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni sinni til að gegna starfinu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.

Við ráðningar hjá embættinu er tekið mið af jafnréttisáætlun þess.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsfólk lögreglu verður almennt að njóta, sbr. 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Árni Bergur Sigurðsson

sviðsstjóri ákærusviðs

Tölvupóstur: arni.bergur@lrh.is

Sími: 444-1000

Sigríður Gisela Stefánsdóttir

mannauðssérfræðingur

Tölvupóstur: sigridur.g@lrh.is

Sími: 444-1000

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Saksóknarfulltrúar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026