Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landbún­að­ar­há­skóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Tamninga- og reiðkennari við Landbúnaðarháskóla Íslands

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.06.2026

Umsóknarfrestur

15.07.2026

Tamninga- og reiðkennari við Landbúnaðarháskóla Íslands

Starf tamninga- og reiðkennara við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er laust til umsóknar. Starfsmaðurinn gegnir lykilhlutverki í diplómanámi í tamningafræði við LbhÍ en eitt af markmiðum námsins er að opna huga nemenda til að nýta landsins gæði til tamninga. Atferli og velferð hestsins verður í hávegum höfð í allri vinnu nemenda við hestinn.

Starfsmaðurinn mun jafnframt koma að kennslu í reiðmennsku í hestafræði sem er nám á BSc stigi sem og í búfræði sem er starfsmenntanám á framhaldsskólastigi.

Um Landbúnaðarháskóla Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands er mennta- og rannsóknastofnun á sviði landbúnaðar, landnýtingar, umhverfisvísinda, landslagsarkitektúrs og skipulagsfræða. LbhÍ vinnur að sjálfbærri nýtingu auðlinda, hágæða landbúnaðarframleiðslu og leggur áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni í allri starfsemi sinni. LbhÍ veitir gráður á BSc, MSc og doktorsstigi ásamt því að bjóða upp á starfsmenntanám í búfræði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla og þátttaka í þróun námskeiða í diplómanámi í tamningafræði

  • Kennsla í reiðmennsku, hestafræði og umsjón námskeiða í búfræði

  • Skipulag verklegrar kennslu og verkefna

  • Námsmat og endurgjöf til nemenda

  • Vinna sjálfstætt og í hópum við uppfærslu kennsluskráa og gerð nýrra áfanga

  • Þátttaka í rannsókna- og nýsköpunarstarfi

  • Þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Þjálfari og reiðkennari, BS próf í reiðmennsku og reiðkennslu eða sambærilegt nám sem styður við starfslýsingu

  • Hagnýt reynsla og þekking á ýmsum sviðum hesta- og tamningafræða

  • Áhugi á miðlun þekkingar og kennslufræðum

  • Góð tölvukunnátta

  • Geta til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp

  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum

  • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.

  • Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að láta ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini fylgja umsókn sinni.

  • Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

  • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eyjólfur Guðmundsson

Deildarforseti

Tölvupóstur: eyjolfurg@lbhi.is

Sími: 433 5000

Guðmunda Smáradóttir

Mannauðs- og gæðastjóri

Tölvupóstur: gudmunda@lbhi.is

Sími: 433 5000

Þjónustuaðili

Landbún­að­ar­há­skóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Tamninga- og reiðkennari við Landbúnaðarháskóla Íslands

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.06.2026

Umsóknarfrestur

15.07.2026