Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Lögreglufulltrúi í kærumóttöku - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026
Lögreglufulltrúi í kærumóttöku - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum er laus til umsóknar staða lögreglufulltrúa í rannsóknardeild. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna frá og með 1. nóvember 2026.
Hjá embættinu starfa rúmlega 200 manns í ólíkum og krefjandi störfum. Í fjölmennu liði lögreglunnar á Suðurnesjum býr mikill þróttur og góð þekking þar sem áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda og góð samskipti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kveðið er á um réttindi og skyldur lögreglumanna í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Almennar upplýsingar um verksvið og ábyrgð lögreglufulltrúa má finna í 8. gr. reglugerðar nr. 1051/2006, um starfsstig innan lögreglunnar, en helstu verkefni þessa starfs eru:
Hefur daglega umsjón með kærumóttöku í samráði við aðstoðaryfirlögregluþjón.
Tryggir gæði rannsókna og að skil gagna séu ávallt til fyrirmyndar og í samræmi við reglur og fyrirmæli
Ber ábyrgð á forgangsröðun mála sem berast kærumóttökunni.
Sér um birtingu fyrirkalla, m.a. í Lögbirtingi og er tengiliður embættisins við Héraðsdóm Reykjaness.
Aðstoð við starfsmenn og ráðgjöf til þeirra við rannsóknir, yfirferð og skráningu mála að lokinni rannsókn auk ráðstöfunar þeirra til rannsóknardeildar, annarra embætta eða annað eftir atvikum.
Tryggir gott samstarf við ákærendur, ákærusvið, aðrar deildir og e.a. atvikum við önnur embætti, stofnanir og hagsmunaaðila.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Til þess að hljóta skipun í starf lögreglufulltrúa, skal umsækjandi hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 2 ár frá því hann lauk lögreglumenntun.
Yfirburðar þekking á rannsóknum mála og góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er nauðsynleg.
Aukin menntun og önnur reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
Færni í mannlegum samskiptum, leiðtogahæfni, sveigjanleiki, nákvæm og traust vinnubrögð og hæfni til að starfa í hóp eru mikilvægir eiginleikar. Aðlögunarhæfni og álagsþol eru einnig góðir eiginleikar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfið er dagvinna.
Eftirfarandi upplýsingum er beint til umsækjenda. Samkvæmt 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er mælt fyrir um að engan megi skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið með því að smella á hlekkinn hér að neðan og láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja með sem viðhengi. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að vanda umsóknir sínar.
Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Varðandi persónuverndarákvæði gagnvart umsækjendum, sjá vef lögreglunnar:
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Bjarney Sólveig Annelsdóttir
Yfirlögregluþjónn löggæslusviðs
Tölvupóstur: baddy@logreglan.is
Sími: 4442200
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Lögreglufulltrúi í kærumóttöku - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026