
Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar
Upplýsingar um starf
Starf
Skjalastjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.08.2026
Umsóknarfrestur
28.08.2026
Skjalastjóri
Sjúkratryggingar auglýsa laust til umsóknar starf skjalastjóra. Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan sérfræðing á sviði skjala- og upplýsingamála.
Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslenska heilbrigðiskerfinu sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og stuðlar að jöfnu aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það að leiðarljósi að vernda heilbrigði. Stofnunin kaupir og greiðir fyrir stóran hluta heilbrigðisþjónustu landsins fyrir hönd ríkisins og annast jafnframt réttindi vegna lyfja, hjálpartækja og ýmissa bóta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg umsýsla með skjalasafni Sjúkratrygginga, þ.m.t. gerð og viðhaldi málalykils, skjalavistunaráætlunar, geymsluskráa, tilkynningu og afhendingu rafrænna gagnasafna til langtímavarðveislu
Umsjón með rafrænu skjalavörslukerfi, þ.m.t. skráningu mála og málsgagna
Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks um skjalavörslu og skjalastjórn
Mótun innanhússferla, verklags og stefnu í skjalamálum Sjúkratrygginga
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í upplýsinga- og skjalastjórn
Góð þekking og reynsla á opinberri skjalavörslu og skjalastjórn
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Færni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að leiða umbætur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er um starfið á Starfatorgi ríkisins á www.starfatorg.is. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Sjúkratrygginga við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Æskilegt að viðkomandi get hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Sjúkratryggingar
Upplýsingar um starf
Starf
Skjalastjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.08.2026
Umsóknarfrestur
28.08.2026