
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður á rannsóknardeild - HSN Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
24.06.2026
Umsóknarfrestur
08.07.2026
Starfsmaður á rannsóknardeild - HSN Fjallabyggð
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Siglufirðióskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann á rannsóknardeild stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og mikilvægt starf þar sem fagmennska, þjónustulund og góð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfið býður upp á tækifæri til að taka virkan þátt í þjónustu við samfélagið og vinna náið með öðru fagfólki innan heilbrigðisþjónustunnar.
Um er að ræða dagvinnu í 50% starfshlutfalli með vinnutíma frá kl. 08:00-12:00. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Á HSN Fjallabyggð starfar samhentur og öflugur hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á vellíðan í vinnu, jákvætt starfsumhverfi og að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hér gefst tækifæri til að starfa í nánu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem stutt er í fjölbreytta útivist og góð lífsgæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Blóðmeina-, og meinefna-, þvagrannsóknir og sýklaræktanir
Blóðtökur og samskipti við skjólstæðinga
Skráning og vinna í FlexLab og upplýsingakerfum HSN
Virk þátttaka í gæðastarfi rannsóknardeildar
Samstarf við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk
Önnur tilfallandi verkefni skv. beiðni næsta yfirmanns
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi, svo sem lífeindafræði, hjúkrun, sjúkraliði, sjúkraflutningamaður eða líffræði
Starfsleyfi heilbrigðisstéttar ef við á
Góð tölvukunnátta
Jákvæðni og mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
Frumkvæði, áhugi og metnaður til að ná árangri
Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
Hreint sakavottorð og gott orðspor
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 08.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Margrét Gylfadóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is
Sími: 432 4362

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður á rannsóknardeild - HSN Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
24.06.2026
Umsóknarfrestur
08.07.2026