Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur hjá RHA

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

14.08.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026

Sérfræðingur hjá RHA

Auglýst er eftir sérfræðingi til rannsóknastarfa. Starfið felur í sér vinnu við rannsóknir á sviði félagsvísinda og innleiðingu jafnréttisáætlunar skólans auk annarra tilfallandi verkefna, svo sem styrkumsókna. Starfið er laust frá 1. september 2026 og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem fyrst. Starfsstöð er á Akureyri. Næsti yfirmaður er forstöðumaður RHA.

RHA er sjálfstæð eining innan Háskólans á Akureyri sem aflar sér einkum tekna með rannsóknaverkefnum fyrir ýmsa aðila innanlands sem utan. Hlutverk RHA er að efla rannsóknastarfsemi við Háskólann á Akureyri og styrkja tengsl hans við atvinnulífið. Einnig að vinna að þróun nýrra verkefna innan háskólans og koma þeim í réttan farveg. Sjá nánar á vefslóð www.rha.is.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur einkum í sér vinnu við rannsóknir á sviði félagsvísinda og innleiðingu og eftirfylgni með jafnréttisáætlun skólans. Sérfræðingur skal geta unnið sjálfstætt að eigin rannsóknarverkefnum og í hóp með öðrum rannsakendum. Starfið felur m.a. í sér samfélagsrannsóknir, samstarfsverkefni með innlendum og erlendum rannsakendum og umsóknir í íslenska og erlenda sjóði. Sérfræðingur verður jafnframt starfsmaður jafnréttisráðs og sér til þess að verkefnum ráðsins sé sinnt og kemur fram fyrir hönd ráðsins/skólans í samstarfsverkefnum á sviði jafnréttismála.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða sem nýtist í starfi er skilyrði. Doktorspróf er kostur.

  • Þekking á jafnréttismálum og reynsla af innleiðingu jafnréttisáætlunar er skilyrði.

  • Góð þekking á eigindlegri og megindlegri aðferðafræði, skýrsluskrifum og framsetningu niðurstaðna er skilyrði.

  • Reynsla af þátttöku í innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum er kostur.

  • Góð almenn tölvukunnátta og kunnátta í einu eða fleiri tölfræðiforritum.

  • Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

  • Góðir skipulagshæfileikar og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.

  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins.

  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Arnar Þór Jóhannesson

Forstöðumaður RHA

Tölvupóstur: arnar@unak.is

Sími: 460 8901

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur hjá RHA

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

14.08.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026