Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Tæknimaður í ljósadeild Þjóðleikhússins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Tæknimaður í ljósadeild Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu og setur upp leiksýningar sem hrífa áhorfendur og skemmta, vekja til umhugsunar, endurspegla fjölbreytileika mannlífsins og veita innblástur. Þjóðleikhúsið er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfsfólk leggur metnað sinn í að skapa jarðveg fyrir nýsköpun og framþróun í sviðslistum og bjóða upp á framúrskarandi leiksýningar.

Óskað er eftir kraftmiklum starfskrafti í ljósadeild Þjóðleikhússins. Helstu verkefni eru uppsetning, rekstur og viðhald ljósabúnaðar fyrir sýningar, æfingar og aðra viðburði á vegum leikhússins.

Þjóðleikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður þar sem fjölbreyttur og samheldinn hópur starfar. Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og boðið er upp á hlunnindi svo sem samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppsetning, rekstur og viðhald ljósabúnaðar

  • Forritun ljósakerfa

  • Tæknivinna vegna æfinga, sýninga og annarra viðburða

  • Aðstoð við uppsetningar og breytingar á sýningum

  • Almenn verkefni innan sviðs- og ljósadeildar

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Reynsla af ljósatækni, viðburðatækni eða sambærilegum störfum

  • Góð þekking á ljósabúnaði og ljósastýringarkerfum

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs

  • Öryggisvitund og fagleg vinnubrögð

  • Reynsla af leikhússtarfi er kostur

  • Fagbréf atvinnulífsins í ljóstækni eða sambærileg þekking og reynsla er kostur

  • Menntun í rafvirkjun, rafeindavirkjun eða skyldum greinum er kostur

  • Fagbréf í tímabundnum burðarvirkjum eða sambærileg þekking og reynsla er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag tæknifólks hafa gert.

Um er að ræða 100% starf.Vinnutími er breytilegur og tekur mið af starfsem leikhússins.Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Félags tæknifólks.Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst en upphaf starfs getur verið umsemjanlegt.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir því hvernig hann uppfyllir hæfnikröfur auglýsingar

  • afrit af prófskírteinum

  • upplýsingar um umsagnaraðila frá fyrri störfum

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Leikhúsið áskilur sér rétt til að ráða engan uppfylli enginn umsækjandi kröfur.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin

Félag tæknifólks Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag tæknifólks hafa gert. is is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kjartan Þórisson

Tölvupóstur: kjartan.thorisson@leikhusid.is

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Tæknimaður í ljósadeild Þjóðleikhússins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026