Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn í Vestmanna­eyjum

Upplýsingar um starf

Starf

Varðstjóri-Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.07.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026

Varðstjóri-Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum

Hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum er laus til umsóknar staða varðstjóra. Gert er ráð fyrir því að lögreglustjóri setji í stöðuna frá og með 1. september 2026 í 6 mánuði með skipun í huga.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk lögreglu er m.a. að gæta almannaöryggis og halda uppi lögum og reglu, leitast við að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda eignarrétt, opinbera hagsmuni og hvers konar lögmæta starfsemi, stemma stigu við afbrotum, koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og ríkisins, vinna að uppljóstran brota, stöðva ólögmæta háttsemi og greiða götu borgaranna eftir því sem við á og aðstoða þá þegar hætta steðjar að. Um v erksvið og ábyrgð varðstjóra vísast nánar til 10. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglunnar.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar og hafa starfað sem lögreglumaður í a.m.k. tvö ár eftir að námi lauk.

Æskilegt er að umsækjendur búi yfir haldgóðri þekkingu á lögreglustörfum og landskerfum lögreglu. Frumkvæði, jákvæðni, færni í mannlegum samskiptum, góðir skipulagshæfileikar, nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að starfa í hóp eru nauðsynlegir eiginleikar. Þekking og reynsla af vettvangsstjórn er kostur sem og aukin menntun sem nýtist í starfinu.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Um vaktavinnu er að ræða auk bakvaktaskyldu að hluta.

Til að staðreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði e-liðar 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglustjóra heimilt skv. 28. gr. a. sömu laga að afla upplýsinga um umsækjendur úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir.

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Stefán Jónsson

yfirlögregluþjónn

Tölvupóstur: stefanj@logreglan.is

Sími: 444 2093

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn í Vestmanna­eyjum

Upplýsingar um starf

Starf

Varðstjóri-Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.07.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026