Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Þroskaþjálfi á barna- og unglingageðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.08.2026

Umsóknarfrestur

20.08.2026

Þroskaþjálfi á barna- og unglingageðdeild

Þroskaþjálfi óskast til starfa á barna- og unglingageðdeild Landspítala. Um er að ræða dagvinnu á samsettri dag- og legudeild. Þar er börnum og unglingum upp að 18 ára aldri með geðrænan vanda veitt margvísleg sérfræðiþjónusta. Unnið er í þverfaglegum teymum að greiningu og meðferð og einnig er veitt ráðgjöf og fræðsla. Þjónustan tekur mið af þörfum barna og fjölskyldum þeirra. Mikil samvinna er höfð við fagaðila í nærumhverfi.

Á deildinni starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingsmiðuð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfar í þverfaglegu teymi að umönnun, greiningu og meðferð barna með samsettan geðrænan vanda

  • Tekur þátt í gerð, framkvæmd og endurmati einstaklingshæfðra meðferðaráætlana í samvinnu við börn og fjölskyldur

  • Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu

  • Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi

  • Reynsla af meðferðar-, umönnunar- eða uppeldisstörfum

  • Brennandi áhugi á veitingu geðheilbrigðisþjónustu við börn og fjölskyldur

  • Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu

  • Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og frumkvæði

  • Skipulagshæfni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð

  • Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar

  • Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli

  • Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Þroskaþjálfafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Þroskaþjálfi

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5

Staðsetning: Dalbraut 12

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Tinna Guðjónsdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: tinnagud@landspitali.is

Valgerður Björg Hafsteinsdóttir

Aðstoðardeildarstjóri

Tölvupóstur: valgehaf@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Þroskaþjálfi á barna- og unglingageðdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.08.2026

Umsóknarfrestur

20.08.2026