
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði/sjúkraliðanemi HSN Dalvík-Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
21.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Sjúkraliði/sjúkraliðanemi HSN Dalvík-Fjallabyggð
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Dalvík-Fjallabyggð óskar eftir að ráða sjúkraliða og/eða sjúkraliðanema til starfa í Fjallabyggð.
Um er ræða störf í heimahjúkrun og hjúkrunar- og sjúkrasvið svið á Siglufirði ásamt hjúkrunarheimilinu Hornbrekku á Ólafsfirði. Starfshlutfall er 50-100%. Leitað er að ábyrgum og þjónustulunduðum einstaklingum sem hafa áhuga á fjölbreyttum og krefjandi störfum í heilbrigðisþjónustu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita skjólstæðingum og sjúklingum faglega og einstaklingsmiðaða umönnun
Aðstoða við athafnir daglegs lífs og almenna hjúkrun
Taka þátt í teymisvinnu og vinna náið með öðrum heilbrigðisstéttum
Skrá og miðla upplýsingum samkvæmt verklagi stofnunarinnar
Stuðla að velferð, öryggi og vellíðan skjólstæðinga og sjúklinga
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Fullgilt sjúkraliðapróf og íslenskt starfsleyfi. Staðfesting á námi fyrir nema
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Áreiðanleiki og helgun í starfi
Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
Góð íslensku- og enskukunnátta
Gott orðspor og hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og íslenskt starfsleyfi. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Margrét Gylfadóttir
Yfirhjúkrunarfræðingur
Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is
Sími: 4324300

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði/sjúkraliðanemi HSN Dalvík-Fjallabyggð
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
21.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026