Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Hamraborg

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

10.08.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Hamraborg

Langar þig að koma og starfa í skemmtilegu teymi? Heilsugæslan Hamraborg leitar að jákvæðum heilsugæsluritara til að koma til liðs við sig.

Við leitum að einstaklingi sem vinnur skipulega og af nákvæmni, hefur ríka þjónustulund og á auðvelt með að takast á við fjölbreytt verkefni í annasömu starfsumhverfi. Um er að ræða 80% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 9. september nk. eða eftir samkomulagi.

Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ritar sjúkraskýrslur, tilvísanir og vottorð í sjúkraskrárkerfi

  • Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun rannsóknarniðurstaðna, læknabréfa, frágangi gagna o.fl.

  • Umsjón með tímafjölda/dagskrá í móttöku

  • Aðstoðar við móttöku nýrra starfsmanna

  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar

  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga

  • Meðhöndlun heilbrigðis- og persónuupplýsinga

  • Sveigjanleiki og vilji til að sinna starfi í móttöku eftir þörfum

  • Ýmis önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur

  • Nám í heilbrigðisritun eða nám sem nýtist í starfi

  • Reynsla af ritarastarfi skilyrði

  • Reynsla af Sögukerfi æskileg

  • Reynsla af Heilsugátt kostur

  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynleg

  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði

  • Þekking á upplýsinga- og skjalastjórnun

  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð

  • Góð almenn enskukunnáttu æskileg

  • Íslenskukunnátta skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Björk Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: kristin.bjork.gudmundsdottir@heilsugaeslan.is

Huldís Mjöll Sveinsdóttir

Tölvupóstur: huldis.mjoll.sveinsdottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Hamraborg

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80%

Starf skráð

10.08.2026

Umsóknarfrestur

24.08.2026