Þjónustuaðili
Alþingi
Upplýsingar um starf
Starf
Stafrænn þróunarstjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026
Stafrænn þróunarstjóri
Markmið skrifstofu Alþingis er að efla stafræna getu sína, bæta þjónustu og einfalda ferla. Við leitum að stafrænum þróunarstjóra til að leiða þá vegferð.
Um er að ræða nýtt lykilhlutverk sem heyrir beint undir skrifstofustjóra og ber ábyrgð á stefnumótun og samhæfingu stafrænna umbóta skrifstofunnar. Leitað er að öflugum einstaklingi með farsæla reynslu af sambærilegum verkefnum og færni til að sameina fólk um skýra sýn og forgangsröðun verkefna. Viðkomandi er ætlað að leiða framkvæmd stafrænnar vegferðar og stuðla að þróun lausna sem styðja við starfsemina í heild.
Stafrænn þróunarstjóri þarf að tryggja að ákvarðanir um stafræna þróun byggi á skýrum markmiðum og raunhæfum forsendum. Auk faglegrar þekkingar þarf viðkomandi að búa yfir framúrskarandi samstarfs- og samskiptafærni og getu til að skapa samstöðu um markmið, jafnvel án formlegs boðvalds.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða stefnumótun um stafræna þróun og innleiðingu hennar
Styrkja verkefnastýringu stafrænna verkefna og forgangsraða umbótaverkefnum þvert á starfsemina
Tryggja að stafræn þróun og innleiðing lausna taki mið af þörfum Alþingis og kröfum um upplýsingaöryggi, persónuvernd og góða stjórnsýsluhætti
Stuðla að uppbyggingu stafrænnar hæfni innan skrifstofunnar
Meta og leiða innleiðingu nýrrar tækni með ábyrgum hætti, þ.m.t. gervigreindar
Veita framkvæmdastjórn faglega ráðgjöf um stefnumótandi ákvarðanir stafrænna umbóta
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Farsæl reynsla af verkefnastýringu umbótaverkefna með mælanlegum árangri
Víðtæk þekking og reynsla af stafrænni þróun og upplýsingatækni
Leiðtogahæfni og farsæl reynsla af því að virkja fólk, byggja upp samstarf og skapa meðbyr með umbótastarfi
Reynsla af stefnumótandi ákvarðanatöku sem byggir á gögnum og greiningu
Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að miðla flóknum viðfangsefnum með árangursríkum hætti
Frumkvæði, drifkraftur og framsýni
Þekking á stjórnsýslu og starfsumhverfi opinberra stofnana er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni til að gegna starfinu. Einnig skal leggja fram staðfestingu á prófgráðum og upplýsingum um umsagnaraðila. Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um. Gildi skrifstofu Alþingis eru fagmennska, virðing og framsækni.
Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum í ráðningarkerfi Orra.
Nánari upplýsingar um skrifstofu Alþingis má finna á vef þingsins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Alþingi
Upplýsingar um starf
Starf
Stafrænn þróunarstjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026