Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Hlíðum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.07.2026

Umsóknarfrestur

28.07.2026

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Hlíðum

Langar þig að koma og starfa á nýrri og glæsilegri heilsugæslustöð?

Heilsugæslan Hlíðum leitar að jákvæðum og drífandi heilsugæsluritara til að koma til liðs við okkur. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ritar sjúkraskýrslur, tilvísanir og vottorð í sjúkraskrárkerfi

  • Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun rannsóknarniðurstaðna, læknabréfa, frágangi gagna o.fl.

  • Umsjón með tímafjölda/dagskrá í móttöku

  • Aðstoðar við móttöku nýrra starfsmanna

  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar

  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga

  • Meðhöndlun heilbrigðis- og persónuupplýsinga

  • Aðstoðar móttökuritara í móttöku

  • Ýmis önnur tilfallandi störf

Viðkomandi þarf í sumum tilfellum að opna heilsugæslustöðina að morgni og er því vinnutími frá kl. 8.

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisgagnafræði, nám í heilbrigðisritun eða nám sem nýtist í starfi

  • Reynsla af ritarastarfi skilyrði

  • Reynsla af Sögukerfi æskileg

  • Reynsla af Heilsugátt kostur

  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynleg

  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði

  • Þekking á upplýsinga- og skjalastjórnun

  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð

  • Góð almenn enskukunnáttu æskileg

  • Íslenskukunnátta skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Svavarsdóttir

Tölvupóstur: hildur.svavarsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513 5900

Anna Ólafsdóttir

Tölvupóstur: anna.olafsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513 5900

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Hlíðum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.07.2026

Umsóknarfrestur

28.07.2026