Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Lögreglumenn - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.07.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026

Lögreglumenn - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lausar til umsóknar 19 stöður lögreglumanna. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar frá og með 1. september 2026 með skipun í huga að sex mánaða reynslutíma loknum.

Hjá embættinu starfa rúmlega 200 manns. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi. Í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum er Keflavíkurflugvöllur sem gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu almannaflugs á Íslandi og tengir landið við Evrópu og Norður-Ameríku. Í fjölmennu liði lögreglunnar á Suðurnesjum býr mikill þróttur og góð þekking.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almennar upplýsingar um verksvið og ábyrgð lögreglumanns má finna í 11. gr. reglugerðar nr. 1051/2006, um starfsstig innan lögreglunnar. Meðal verkefna lögreglumanns er að halda uppi lögum og reglu í samræmi við lög, reglur og fyrirmæli sem honum eru gefin.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Umsækjandi þarf að standast bakgrunnsskoðun flugverndar með jákvæðri umsögn.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Starfið er vaktavinna.

Athygli umsækjenda er vakin á heimild til að skoða sakaferil umsækjenda um starf í lögreglu en samkvæmt 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er mælt fyrir um að engan megi skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið með því að smella á hlekkinn hér að neðan og láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja með sem viðhengi.

Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Varðandi persónuverndarákvæði gagnvart umsækjendum, sjá vef lögreglunnar: https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2020/04/Persónuverndaryfirlýsing-til-umsækjenda.pdf

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bjarney Sólveig Annelsdóttir

yfirlögregluþjónn

Tölvupóstur: baddy@logreglan.is

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Lögreglumenn - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.07.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026