Þjónustuaðili
Þjóðminjasafn Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður fasteigna, öryggismála og viðgerða
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.06.2026
Umsóknarfrestur
26.06.2026
Umsjónarmaður fasteigna, öryggismála og viðgerða
Laust er til umsóknar fullt starf umsjónarmanns fasteigna, öryggismála og viðgerða á munasviði hjá Þjóðminjasafni Íslands. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér ábyrgð og daglega umsjón með varðveislu- og safnahúsnæði safnsins, viðhaldi og rekstri öryggiskerfa ásamt eftirliti og þátttöku í verkefnum í húsasafni. Leitað er að vandvirkum, vinnusömum, þjónustulunduðum og úrræðagóðum einstaklingi með góða þekkingu á viðhaldi. Starfsstöðvar viðkomandi starfsmanns eru á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði, í Vesturvör í Kópavogi og Suðurgötu í Reykjavík auk staða sem tilheyra húsasafni Þjóðminjasafnsins.
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun og höfuðsafn á sviði menningarminja og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á grundvelli laga um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011, safnalaga nr. 141/2011 og laga um menningarminjar nr. 80/2012.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg umsjón og eftirlit með húsnæði safnsins í teymi umsjónarmanna
Dagleg umsjón með viðhaldi og samskiptum við þjónustuaðila og iðnaðarmenn
Gerð viðhaldsáætlana
Innkaup og öflun tilboða
Umsjón með lóðum og sorphirðumálum
Þátttaka í verkefnum í húsasafni Þjóðminjasafnsins
Minniháttar viðhald
Tekur þátt í uppsetningu og niðurtöku sýninga
Tekur þátt í ýmsum verkefnum tengdum safnkosti
Er fulltrúi safnsins í öryggisnefnd og tekur þátt í öryggisþjálfun starfsfólks
Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Verklagni, vinnusemi, nákvæmni, frumkvæði og vönduð vinnubrögð
Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugi og þekking á byggingararfinum er kostur
Eiga auðvelt með að vinna í hópi og einn
Almenn góð tölvukunnátta
Líkamlegt hreysti og snyrtimennska
Samstarfshæfileikar, rík þjónustulund, sjálfstæð vinnubrögð og dugnaður eru skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um enda er við ráðningar í störf hjá safninu tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar.
Umsókn skulu fylgja yfirlit og greinargóðar upplýsingar um störf umsækjenda og menntun ásamt kynningarbréfi, á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfs eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtölum og umsagna sem aflað er.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Sameyki Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. is is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Þjóðminjasafn Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður fasteigna, öryggismála og viðgerða
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.06.2026
Umsóknarfrestur
26.06.2026