
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026
Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Langar þig að vinna á fjölbreyttum og skemmtilegum vinustað?
Við óskum eftir öflugum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum til starfa á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi. Deildin er 19 rúma lyflækningadeild ætluð sjúklingum með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Hjúkrunarviðfangsefnin á deildinni eru mjög fjölbreytt.
Á deildinni starfar öflugur hópur einstaklinga í þverfaglegum teymum og markvisst unnið að umbótum og framþróun. Hópurinn á deildinni er samhentur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Við bjóðum jafnt velkomna reynslumikla sem og nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Ráðið er í starfið frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala
Helstu verkefni og ábyrgð
Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
Skrá hjúkrun í samræmi við reglur Landspítala
Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
Faglegur metnaður
Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. is is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026