
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Fjörður
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60%
Starf skráð
17.07.2026
Umsóknarfrestur
27.07.2026
Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Fjörður
Við hjá heilsugæslunni Firði leitum að jákvæðum og metnaðarfullum sálfræðingi til að koma til liðs við okkur. Um er að ræða 60% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvang, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigði líðan barna og unglinga. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Sálfræðiþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri
Mat og greining á vanda barna og unglinga
Klínísk verkefni og fyrirmyndar vinnubrögð í samræmi við klínískar leiðbeiningar
Notkun sálfræðilegra prófa
Beitir gagnreyndum meðferðum og ráðgjöf
Þátttaka í námskeiðahaldi fyrir fagfólk, skjólstæðinga og/eða aðstandendur
Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Samstarf og samráð við aðrar stofnanir í heilbrigðis- og félagsþjónustu
Þátttaka í þróun geð- og sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
Hæfniskröfur
Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er skilyrði
Reynsla af greiningu og meðferð barna og unglinga
Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum
Reynsla af starfi í heilsugæslu æskileg
Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
Góð færni og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 27.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Fjörður
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60%
Starf skráð
17.07.2026
Umsóknarfrestur
27.07.2026