Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu leiða eldhúsið okkar á Sauðárkróki?

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.07.2026

Umsóknarfrestur

16.07.2026

Viltu leiða eldhúsið okkar á Sauðárkróki?

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir að ráða stjórnanda í mötuneytið. Um er að ræða 100% starfshlutfall með sveigjanlegum vinnutíma. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst eða skv. samkomulagi.

Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkrók starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Áhersla er lögð á vellíðan á vinnustað, teymisvinnu og lærdómssamfélag.

Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi

Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira. https://www.skagafjordur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Matseld og framreiðsla samkvæmt gæðakröfum HSN

  • Stjórnun daglegs rekstrar og eldhúss og mannaforráð

  • Gerð vaktaplana

  • Gerð matseðla, næringarsamsetningu og innkaup

  • Gæðaeftirlit með framleiðslu, matvælaöryggi og hreinlæti

  • Stuðla að öryggi, gæðum og hagkvæmni í rekstri

  • Virk þátttaka í þróun og umbótum á starfsemi eldhússins

  • Þátttaka í endurskoðun og þróun verkferla með áherslu á skilvirkni, gæði og þjónustu

  • Leiða og styðja við innleiðingu nýrra vinnubragða og breytinga eftir því sem starfsemin þróast

  • Önnur verkefni skv. beiðni næsta stjórnanda

Hæfniskröfur

  • Matreiðslumaður/matartæknir eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af störfum í mötuneyti, stóreldhúsi eða sambærilegu umhverfi er kostur

  • Góð þekking á Timian pöntunarkerfi er kostur

  • Reynsla af umbótastarfi, þróun verkferla eða þátttöku í breytingaverkefnum kostur

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Gott orðspor, ökuleyfi og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem færð eru rök fyrir hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is

Sími: 432 4200

Birkir Örn Stefánsson

forstöðumaður rekstrar og innkaupa

Tölvupóstur: birkir.orn.stefansson@hsn.is

Sími: 432 4044

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu leiða eldhúsið okkar á Sauðárkróki?

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.07.2026

Umsóknarfrestur

16.07.2026