Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á HVE, heilsugæslan í Borgarnesi, afleysing

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026

Hjúkrunarfræðingur á HVE, heilsugæslan í Borgarnesi, afleysing

Hjúkrunarfræðingur óskast í afleysingu á heilsugæslustöðina í Borgarnesi. Á heilsugæslunni er lagt upp með mikla teymisvinnu, þar starfa hjúkrunarfræðingar ásamt sjúkraliða, læknum, sjúkraflutningamönnum, heilbrigðisgagnafræðingi ofl. Staðan er laus.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ber ábyrgð á að skipuleggja og framkvæma hjúkrun skjólstæðinga á faglegum forsendum, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu og stefnu HVE. Vinnur undir stjórn yfirhjúkrunarfræðings og ber faglega, siðferðislega og lagalega ábyrgð á störfum sínum skv. Siðareglum hjúkrunarfræðinga. Ber ábyrgð á að framfylgja reglum um hreinlæti og smitgát á stofnuninni. Sýnir faglegan metnað og færni og leitast við að viðhalda þekkingu sinni og stuðlar að framþróun í hjúkrun. Þekkir og vinnur eftir Lögum um heilbrigðisstarfsmenn 34/2012.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á heilsugæslu, t.d. skólahjúkrun, lífsstílsmóttöku og önnur störf sem tilheyra hjúkrun á heilsugæslustöðinni.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi.

  • Diplomanám í heilsugæsluhjúkrun er kostur

  • Góð íslenskukunnátta.

  • Hæfni í mannlegum samkiptum.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja

  • Staðfest afrit af hjúkrunarleyfi

  • Staðfesting á námi, námskeiðum og námi sem nýtist í starfi.

  • Upplýsingar um ónæmisaðgerðir

  • Ferilskrá.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sótt er um á starfatorg.is.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Oddný Eva Böðvarsdóttir

Tölvupóstur: oddny.e.bodvarsdottir@hve.is

Sími: 4321430

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á HVE, heilsugæslan í Borgarnesi, afleysing

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026