Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Gæðastjóri á gæðadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.06.2026

Umsóknarfrestur

30.06.2026

Gæðastjóri á gæðadeild

Landspítali auglýsir eftir öflugum einstaklingi í starf gæðastjóra á gæðadeild. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem unnið er þvert á svið við að efla gæði, öryggi og umbætur í þjónustu við sjúklinga.

Gæðastjóri starfar með þverfaglegu teymi gæðastjóra og annarra sérfræðinga á gæðadeild Landspítala við þróun og rekstur gæðastjórnunarkerfis spítalans. Gæðastjóri vinnur náið með stjórnendum og öðrum þeim sem vinna að gæðum og umbótum. Áhersla er lögð á að veita framúrskarandi þjónustu innan Landspítala.

Leitað er eftir einstaklingi sem er skipulagður, lausnamiðaður, með góða samskiptahæfni og sem brennur fyrir gæða- og öryggismenningu. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur í samvinnu við stjórnendur sviðs að gæða- og umbótaverkefnum í samræmi við stefnu og starfsáætlun Landspítala

  • Umsjón með úrvinnslu atvika, gæðahandbók, árangursmælingum, úttektum og öðrum gæðamálum

  • Vinnur að uppbyggingu og viðhaldi gæðastjórnunarkerfis

  • Sinnir fræðslu, veitir upplýsingar og kynnir nýjungar er varða gæðamál

  • Er þátttakandi í stefnumótun gæðamála á Landspítala

  • Stuðlar að stöðugum umbótum og uppbyggingu gæða- og öryggismenningar

  • Önnur verkefni í samráði við yfirmann gæðadeildar og framkvæmdarstjóra sviðs

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda er skilyrði

  • Reynsla af störfum á sviði heilbrigðisþjónustu er skilyrði

  • Þekking á aðferðarfræði gæðastjórnunar

  • Reynsla af rekstri gæðastjórnunarkerfa, mótun verkferla og innleiðingu er æskileg

  • Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun

  • Frumkvæði, drifkraftur og geta til að starfa sjálfstætt

  • Örugg framkoma og færni í mannlegum samskiptum

  • Hæfni í tjáningu í ræðu og riti á íslensku og ensku

  • Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisvísindi, gæðastjóri

Tungumálahæfni: Íslenska 5/5

Staðsetning: Skaftahlíð, 105 Reykjavík

viðkomandi stéttarfélag Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. is is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kolbrún Gísladóttir

Tölvupóstur: kolbgisl@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Gæðastjóri á gæðadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.06.2026

Umsóknarfrestur

30.06.2026