Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúar

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.07.2026

Umsóknarfrestur

14.07.2026

Þjónustufulltrúar

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum auglýsir lausar til umsóknar þrjár stöður þjónustufulltrúa á skrifstofu embættisins að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ. Um er að ræða þrjú heil stöðugildi og þurfa viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.

Embætti sýslumannsins á Suðurnesjum er framsækin stjórnsýslu- og þjónustustofnun. Áherslur vinnustaðarins byggja á góðri og faglegri þjónustu, skilvirku verklagi og öflugri liðsheild.

Helstu verkefni og ábyrgð

Störfin eru fjölbreytt og krefjandi og henta öllum kynjum. Þau snúa m.a. að gjaldkerastörfum og verkefnum á sviði innheimtu, þinglýsinga og skilríkja, bæði við bakvinnslur og þjónustu í framlínu s.s. við almenna afgreiðslu og leiðbeiningar til viðskiptavina. Starfsfólk þarf að geta unnið sjálfstætt og undir álagi og búa yfir víðsýni og hæfni í mannlegum samskiptum.

Fyrir liggur að embætti sýslumanna á landsvísu munu sameinast um næstu áramót og má þá búast við einhverri tilfærslu verkefna starfsfólks.

Hæfniskröfur

  • Hreint sakavottorð.

  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér tækninýjungar.

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og gott vald á ensku og/eða öðru erlendu máli.

  • Reynsla af skrifstofustörfum.

  • Reynsla af þjónustustörfum.

  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Jákvæðni, traust og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun.

  • Auga fyrir smáatriðum, öguð og skilvirk vinnubrögð.

  • Geti unnið undir álagi.

  • Stundvísi.

  • Reynsla af gjaldkera og/eða innheimtustörfum er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Launakjör eru skv. kjarasamningi Sameykis og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr.70/1996.

Nánari upplýsingar um starfið veita Halldóra K. Ólafsdóttir skrifstofustjóri í síma 4582222 og Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður í síma 4582228 eða á netfanginu sudurnes@syslumenn.is.

Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí 2026.

Sótt er um starfið á Starfatorgi en einnig er unnt að skila umsóknum til Sýslumannsins á Suðurnesjum, Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ á netfangið sudurnes@syslumenn.is

Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og starfsferil ásamt kynningarbréfi, þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína til að gegna starfinu.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.

Umsóknir um störfin gilda í sex mánuði.

Reykjanesbæ, 1. júlí 2026

Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ásdís Ármannsdóttir

Tölvupóstur: sudurnes@syslumenn.is

Sími: 4582228

Halldóra Katrín Ólafsdóttir

Tölvupóstur: sudurnes@syslumenn.is

Sími: 4582222

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúar

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.07.2026

Umsóknarfrestur

14.07.2026