
Þjónustuaðili
Hagstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Gagnasérfræðingur á Hagstofu Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Gagnasérfræðingur á Hagstofu Íslands
Vilt þú vinna með gögn sem leggja grunn að upplýstu samfélagi?
Hagstofa Íslands leitar að metnaðarfullum og drífandi gagnasérfræðingi sem hefur brennandi áhuga á gögnum, ferlum og tækni í Gagnaþjónustu. Starfið er fjölbreytt og spannar allt frá samskiptum við gagnaveitendur til þróunar og reksturs samræmdra og sjálfvirkra gagnaferla sem mynda grunn að áreiðanlegri hagtölugerð í síbreytilegu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnsla, greining og sannprófun gagna ásamt nánu samstarfi við notendur gagna og gagnaveitendur, svo sem fyrirtæki og stofnanir, til að tryggja gæði og frekari hagnýtingu gagna. Jafnframt felst í starfinu þátttaka í þróun gagnavinnslu og ferla með áherslu á sjálfvirkni, skilvirkni og örugga meðhöndlun gagna. Fyrsta verkefnið snýr að nýjum gögnum um lífeyrissparnað og lífeyrisréttindi sem munu styðja við mikilvægar greiningar og stefnumótun er varða íslenskt samfélag og framtíð þess.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Mikil greininga- og skipulagshæfni
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun upplýsingakerfa
Geta til að tileinka sér nýja hluti hratt og ná heildarsýn
Geta til tjá sig í ræðu og riti á ensku og íslensku
Reynsla af gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu, t.d. með SQL eða Python
Þekking og áhugi á lífeyrismálum og vinnumarkaði er kostur
Hvað býður Hagstofan upp á?
Krefjandi og spennandi verkefni
Vinnu í samfélagslega mikilvægu hlutverki
Skemmtilegt samstarfsfólk
Gott mötuneyti
Íþróttastyrk
Samgöngustyrk
Sveigjanlegan vinnutíma
Möguleika til fjarvinnu að hluta
Bílastæði og hjólageymsla
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Möguleiki er að um tvær ráðningar verði að ræða.
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Öll sem telja sig hæf til starfsins eru hvött til að sækja um óháð kyni og uppruna. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Hagstofu Íslands við ráðningar í störf.
Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Leiðarljós starfseminnar eru þjónusta, áreiðanleiki og framsækni. Hagstofan er staðsett í lifandi umhverfi í Borgartúninu, starfsumhverfið er jákvætt, fjölskylduvænt og sveigjanlegt og við höfum öflugt starfsmannafélag. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is
Vertu hluti af liðsheild sem vinnur að því að skapa traustar upplýsingar fyrir samfélagið
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Hagstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Gagnasérfræðingur á Hagstofu Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026