
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heimahjúkrun HH - Hjúkrunarfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-80%
Starf skráð
16.07.2026
Umsóknarfrestur
27.07.2026
Heimahjúkrun HH - Hjúkrunarfræðingur
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) leitar að hjúkrunarfræðingi í 40-80% ótímabundið starf í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun HH sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, með aðsetur að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s. starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heimahjúkrun leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (https://island.is/s/hh).
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingur vinnur náið með teymisstjóra. Starfssvið hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni. Hann er einnig í samskiptum og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og áhugi á teymisvinnu
Reynsla og áhugi á geðhjúkrun kostur
Mikil samskiptahæfni, sveigjanleiki og rík þjónustulund
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Gilt ökuleyfi
Hreint sakavottorð
Góð íslenskukunnátta og almenn tölvuþekking
Fríðindi í starfi:
Heilsueflingarstyrkur
Samgöngustyrkur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðssviðs, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 40-80%
Umsóknarfrestur er til og með 27.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heimahjúkrun HH - Hjúkrunarfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-80%
Starf skráð
16.07.2026
Umsóknarfrestur
27.07.2026