Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

DMR

Upplýsingar um starf

Starf

Leitar þú að starfi þar sem enginn dagur er eins?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.06.2026

Umsóknarfrestur

25.06.2026

Leitar þú að starfi þar sem enginn dagur er eins?

Dómsmálaráðuneytið leitar af öflugum og drífandi upplýsingafulltrúa á skrifstofu yfirstjórnar. Skrifstofan ber ábyrgð á stefnumótun, stjórnun og samhæfingu á starfsemi ráðuneytisins í heild.

Helstu verkefni og ábyrgð

Upplýsingafulltrúi ber ábyrgð á upplýsingagjöf ráðuneytisins til fjölmiðla og er stjórnendum ráðuneytisins innan handar í samskiptum við þá. Starfið felur í sér gerð fréttatilkynnninga, umsjón með kynningarefni, fjölmiðlafundum og stærri viðburðum og ritstjórn á vef ráðuneytisins. Markmiðið er að tryggja rétta og skýra upplýsingagjöf í samstarfi við ráðherra, aðstoðarmenn og starfsfólk ráðuneytisins.

Hæfniskröfur

  • Þekking á málefnasviðum ráðuneytisins.

  • Þekking og reynsla af starfi í fjölmiðlum og þeirra starfsemi.

  • Þekking og reynsla af vefumsjónarkerfum.

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.

  • Hæfni til að skrifa skýran og hnitmiðaðan texta um flókin álitaefni.

  • Geta til að vinna á faglegan og skilvirkan hátt undir álagi.

  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og metnaður til að ná árangri í starfi.

  • Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi til að sinna starfinu. Umsóknir skulu sendar gegnum starfatorg og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Um fullt starf er að ræða er að ræða og gilda umsóknir í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019.

Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að loknum umsóknarfresti.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Páll Egill Winkel

ráðuneytisstjóri

Tölvupóstur: pall.winkel@dmr.is

Unnur Helgadóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: unnur.helgadottir@dmr.is

Þjónustuaðili

DMR

Upplýsingar um starf

Starf

Leitar þú að starfi þar sem enginn dagur er eins?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.06.2026

Umsóknarfrestur

25.06.2026