
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026
Yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar
Starf yfirlæknis sýkla- og veirufræðideildar Landspítala er laust til umsóknar. Sýkla- og veirufræðideildin er rannsóknarstofa og tilvísunarrannsóknarstofa fyrir Ísland á sviði bakteríufræði, veirufræði, sveppafræði og sníkjudýrafræði. Deildin vinnur með sóttvarnarlækni og öðrum heilbrigðisyfirvöldum að bættri lýðheilsu með rannsóknum og skráningu á smitsjúkdómum, orsökum þeirra og útbreiðslu.
Leitað er eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum sérfræðilækni sem er reiðubúinn að leiða og efla sýkla- og veirufræðiþjónustu Landspítala ásamt því að tryggja árangursríkt mennta- og vísindastarf. Starfið er unnið í nánu samstarfi við deildarstjóra, forstöðumann kjarna, framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Næsti yfirmaður er forstöðumaður klínískrar blóðbanka- og rannsóknaþjónustu. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. desember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á læknisþjónustu sérgreinar, uppbyggingu, skipulagi og þróun sýkla- og veirufræði, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á bæði launa- og rekstrarkostnaði einingarinnar í samráði við deildarstjóra
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni í samráði við deildarstjóra
Ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð sérgreinar með það að markmiði að hún sé hagkvæm og innan rekstrarviðmiða hvers árs
Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar
Þróar þjónustu innan ábyrgðarsviðs með áherslu á samhæfingu við aðra starfsemi
Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í sýkla- og/ eða veirufræði
Leiðtogahæfileikar og vilji til að leiða umbótastarf og breytingar
Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Doktorspróf á fagsviði deildar er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum
Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á)
Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á á heildarmati á hæfni og frammistöðu í viðtali.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Sérfræðilæknir, yfirlæknir,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Borghildur F. Kristjánsdóttir
Tölvupóstur: borgfk@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026